Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, felldi í dag úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar frá því í febrúar um að ekki þurfi að meta umhverfisáhrif sameiginlega af öllum framkvæmdum tengdum álveri á Bakka við Húsavík.
Landvernd krafðist þess í aprílmánuði að umhverfisráðherra felldi ákvörðun Skipulagsstofnunar úr gildi. Þá hafnaði ráðherrann kröfu Landverndar á þeim forsendum að matsferlið væri komið of langt. Í dag kúventi hún í afstöðu sinni.
Með þeirri niðurstöðu er ljóst að meta þarf umhverfisáhrif á öllu í senn; álverinu, Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum til Húsavíkur.
Í úrskurði ráðherra segir að brýnt sé að tryggja að umhverfisáhrifin séu metin á sama tíma og mat þeirra allra liggi fyrir í heild sinni áður en leyfi fyrir einstökum framkvæmdum verði veitt.
