Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og verðandi borgarstjóri, tjáði þá skoðun sína á fundi með stjórnum hverfafélaga flokksins í borginni að stilla ætti upp á framboðslistann fyrir næstu borgarstjórnarkosningar í stað þess að efna til prófkjörs meðal flokksmanna.
Þetta kemur fram í frétt á visir.is fyrir stundu. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hélt fjölmennasta prófkjör íslenskrar stjórnmálasögu í nóvember 2005, fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar, þar sem 12.000 manns tóku þátt. Þar börðust Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Gísli Marteinn Baldursson um oddvitastöðuna og lauk þeirri rimmu með sigri Vilhjálms, sem varð borgarstjóri fyrstu sextán mánuði kjörtímabilsins.
Mun tillaga Hönnu Birna hafa fengið dræmar móttökur á fundinum, enda vilji margir sjálfstæðismenn efna til prófkjörs eftir rúmt ár til að velja listann í næstu kosningum. Telja margir sjálfstæðismenn í Reykjavík mikilvægt nú að gefa nýju fólki tækifæri til að fara fram í prófkjöri og eðlilegt sé að stokka hópinn upp eftir miklar sviptingar á kjörtímabilinu.
Fram kemur í sögusögnum meðal flokksmanna að meirihluti borgarfulltrúa flokksins vilja stilla upp listanum næst og séu hræddir við þau átök sem yrðu innan flokksins sem myndu fylgja prófkjöri á þeim tímapunkti. Hanna Birna verður orðin borgarstjóri þegar kemur að tímasetningu prófkjörs síðla árs 2009.
Hún mun taka við embætti borgarstjóra í Reykjavík 22. mars nk. samkvæmt meirihlutasamningi Sjálfstæðisflokks og F-lista frá því í janúar 2008, en sá stóll var þá eyrnamerktur Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni.
Sjálfstæðisflokkurinn stillti upp framboðslista síðast í borgarstjórnarkosningunum 2002 þegar Björn Bjarnason varð borgarstjóraefni flokksins í stað Ingu Jónu Þórðardóttur, sem vék til hliðar fyrir Birni en sat áfram sem oddviti til vors.
