eyjan.is

Föstudagur 08.08.2008 - 07:46 - Ummæli ()

Ísland komið á græna kortið – eykur vægi umhverfisvænna viðskipta

iceland.jpgHjá Náttúran.is hefur verð unnið að grænu Íslandskorti á undanförnum mánuðum.Kortið hefur margar áherslur sem þó allar vísa í eina átt, þ.e. að auka vægi umhverfisvænna viðskipta og benda á þá aðila sem starfa í takt við sjáfbæra þróun og vistvæna hugsun á landinu öllu.

Þetta á við jafnt nýsköpun á sviði viðskipta og ferðamennsku sem og menningarsöguleg og náttúruleg verðmæti.

Náttúran.is kemur til með að vinna með fyrirtækjum að fullkomnum skráningum um vöruframboð og þjónustu í þeim tilvikum sem að það þjónar fyrirtækjunum. Kortið er aðgengilegt bæði á íslensku og ensku.

Grænt Íslandskort/Green Map, er samvinnuverkefni Náttúran.is og alþjóðlega verkefnisins Green Map Systems og Háskóla Íslands.

Græna Íslandskortið byggist á flokkunarkerfi Green Map og umfangsmikilli forvinnu Náttúran.is við skráningar aðila á Grænar síður og slær smiðshöggið á kortlagningu vistænna kosta í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi.

Kortið birtist á íslensku á Náttúran.is og á ensku á Nature.is í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum og vottunartengingum sem þegar eru fyrir hendi á vefnum. Öllum er frjálst að fá skráningu svo framarlega sem starfsemin byggist á viðurkenndum vottunum eða aðferðafræði enda ekki ætlunin að grænþvo neinn sem ekki hefur unnið fyrir því.

Tilgangur kortsins er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt. Þeir sem vilja skrá sig á græna kortið láti vita af sér á nature@nature.is. Grunnskráning er ókeypis!

Skoða græna Íslandskortið (á íslensku) eða green map of Iceland (á ensku).



«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is