Tillaga Arkþings um Óperuhús í Kópavogi hlutskörpust
Tillaga arkitektastofunnar Arkþings ehf. varð hlutskörpust í samkeppni um hönnun óperuhúss í Kópavogi.
Dómnefnd leggur til að leitað verði samstarfs við hönnuði Arkþings ehf. um þróun og úrvinnslu verkefnisins. Undirbúningsnefnd um byggingu óperuhúss í Kópavogi kynnti niðurstöðu dómnefndarinnar í Salnum í Kópavogi í gær og sagði tillöguna „sannfærandi og vel framsetta.
Þetta er í annað skipti sem efnt er til samkeppni um óperuhúsið. Í fyrra skiptið, í apríl á þessu ári, þótti dómnefndinni engin tillagnanna uppfylla markmið samkeppninnar nægjanlega vel. Í framhaldinu var ákveðið að efna til framhaldssamkeppni milli tveggja tillagna, sem þóttu áhugaverðar lausnir koma fram í, annars vegar frá ALARK arkitektum og hins vegar frá Arkþingi ehf.
„Þetta er eitt skref áfram af mörgum en þó mikilvægt skref,“ sagði Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og formaður dómnefndarinnar í gær. „Menningarþjóð verður að koma þaki yfir þessa listgrein svo að sómi sé að og næst á dagskrá er að koma óperuhúsinu í skipulagsferli.“
Markmiðið með óperuhúsinu er að það verði heimili fyrir óperuna á Íslandi og að þar verði fyrsta flokks aðstaða til óperu- og söngleikjaflutnings auk hliðstæðrar starfsemi, s.s. tónleika og annarrar sviðslistar eða uppákoma.
Í samkeppnislýsingu var gert ráð fyrir að framkvæmdakostnaður næmi um það bil 2,5 milljörðum króna og húsið yrði risið árið 2010. Óperuhúsinu var í forsögn œtlaður staður við Borgarholt á svœði sunnan og vestan við Gerðarsafn, Tónlistarhús og Safnahús og gœtu húsin þannig myndað fullmótað listatorg í hjarta Kópavogsbœjar.
Í viljayfirlýsingu bæjarsins um húsið var samþykkt að stofna einkahlutafélag um verkefnið sem Kópavogur verður aðili að ásamt fjárfestum og Íslensku óperunni. Gert er ráð fyrir að húsið verði boðið út í einkaframkvæmd og að félagið hafi með höndum undirbúning og eftirfylgni með verkefninu.
Í yfirlýsingunni segir meðal annars að kostnaður bæjarsjóðs af verkefninu verður metinn sem framlag til einkahlutafélagsins og mun bærinn úthluta félaginu lóð undir bygginguna í miðbæ Kópavogs eða í nágrenni. Bærinn mun einnig taka þátt í fjármögnun hússins í félagi við einkaaðila, Íslensku óperuna og ríkisvaldið.
Íslenska óperan mun annast rekstur hússins með fjárhagslegum stuðningi ríkisvaldsins en Kópavogsbær mun enga fjárhagslega ábyrgð bera á rekstri hússins. Gert er ráð fyrir því að að endanleg fjármögnun liggi fyrir snemma næsta árs og er samkeppni um hönnun hússins hönnuð.
Í dómnefnd sátu auk Gunnars I. Birgissonar Stefán Baldursson óperustjóri og arkitektarnir Ásdís Ingþórsdóttir, Ólafur Axelsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Undirbúningsnefnd skipa Gunnar I. Birgisson, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, Hafsteinn Karlsson bæjarfulltrúi, Stefán Baldursson óperustjóri og Jón Helgi Guðmundsson forstjóri.
Sjá nánar: Vefur um Óperuhús í Kópavogi.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
