eyjan.is

Viðskipti Mánudagur 18.08.2008 - 20:01 - Ummæli ()

Þrautavaraþjónusta fyrir alla starfsemi bankanna kostar 5-15 milljarða króna á ári

jon-steinsson.jpgLeiðin til að ná verðbólgu niður felst í háum vöxtum og aðhaldssamri peningastefnu. Þetta er álit Jón Steinssonar prófessors í hagfræði við Columbiaháskóla í New York, að því er kom fram í kvöldfréttum Útvarps. Jón flutti fyrirlestur fyrir fullu húsi í hátíðarsal Háskóla Íslands í dag.

Jón segir að niðursveifla í hagkerfinu sé kostnaðurinn við að ná fram stöðugleika á ný og að hún sé óumflýjanleg þegar staðan sé orðin jafn alvarleg og hún er nú.

Til lengri tíma þurfi þó að hugsa um umgjörð peningamálastefnunnar og jafnvel það að taka upp aðra mynt en krónuna. Einnig þurfi að íhuga alvarlega hvernig eigi að haga umgjörð bankamála og hver eigi að bera kostnaðinn af þrautavaraþjónustu bankakerfisins.

Jón sagði í viðtali við Sjónvarpið að við þyrftum að hugsa mjög alvarlega hvort við vildum niðurgreiða slíka þrautavaraþjónustu fyrir alla starfsemi bankanna innanlands og erlendis. Það myndi kosta skattgreiðendur 5-15 milljarða króna á ári.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is