Tveir Rúmenar létust í gærkvöld við störf í Hellisheiðarvirkjun. Mennirnir voru að sinna viðhaldi vatnsrörs við virkjunina og virðast hafa kafnað.
Fréttablaðið segir frá.
Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um slysið rúmlega sjö, en þá höfðu mennirnir verið dregnir út úr rörinu. Lífgunartilraunir báru ekki árangur, en að sögn Odds Árnasonar yfirlögregluþjóns verður nú rannnsakað frekar hver voru tildrög slyssins og hvert banameinið var.
Ekki er ljóst hvort mennirnir létust úr súrefnisskorti eða hvort þeir önduðu að sér eiturgufum með brennisteini eða öðru, er haft eftir yfirlögregluþjónninum.
Gunnar Pétursson hjá Altaki vildi ekki gefa upp nánari deili á mönnunum tveimur í gærkvöld en sagði opinbera aðila myndu gefa út tilkynningu.
Rúmenarnir voru hluti stærri hóps sem var við störf í virkjuninni og bjuggu þar í starfsmannabúðum.
Eftir slysið var samlöndum þeirra safnað saman í stöðvarhúsinu en Rauði kross Ísland veitti áfallahjálp.
Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, segir þetta hörmulegt slys og að Orkuveitan muni gera hvað hún getur til að aðstoða alla viðkomandi málinu.
„Hugur okkar er hjá aðstandendum og vinum,“ segir Hjörleifur.
146
98