Ferðir Þorgerðar og föruneytis til Peking kostaði ráðuneytið tæpar fimm milljónir króna
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, mennta- og íþróttaráðherra, gerði sér tvisvar ferð á Ólympíuleikana í Peking. Hún var komin heim þegar ljóst var að íslenska landsliðið keppti í úrslitaleiknum um gullið og brá sér þá út aftur til að vera viðstödd leikinn.
Í allt kostuðu ferðir Þorgerðar og maka hennar Kristjáns Arasonar, stjórnarmanns HSÍ og formanns landsliðsnefndar, og Guðmundar Árnasonar ráðuneytisstjóra og eiginkonu hans, tæpar fimm milljónir krónar.
Kostnaðurinn var allur greiddur af menntamálaráðuneytinu og fólst í dagpeningum ráðherra og ráðuneytisstjóra, flugfargjöldum og hótelgistingu fyrir ráðherra, ráðuneytisstjóra og maka þeirra.
Seinni ferð ráðherra var sérlega umdeild, en ein og sér kostaði hún 2.126.681 fyrir tvær nætur, segir í Fréttablaðinu.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, telur að ráðherrar eigi að sýna hófsemi og gott fordæmi sem hafi tæpast verið tilfellið í ferðum Þorgerðar.
Hann telur að hópurinn sem fór út hefði getað sætt sig við hófsamari ferðamáta þó ekkert sé óeðlilegt við að ráðherra sé viðstaddur atburði á við þennan. En þar sem Þorgerður var komin heim áður en úrslitaleikurinn fór fram hefði verið „ólánlegt“ að hún færi út aftur. Nóg væri að forseti Íslands og og frú hans væru viðstödd leikinn.
Þorgerður segir sjálf að sér hefði fundist óeðlilegra að íþróttamálaráðherra landsins væri ekki viðstaddur stærsta íþróttaviðburð í sögu þjóðarinnar.
Þá má geta þess að menntamálaráðherra hafði frumkvæði að því í gær að ríkisstjórnin styrkti Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, um fimmtíu milljónir vegna einstaks afreks íslenska handknattleikslandsliðsins á ÓL.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
