Fimmtudagur - 28.8 2008 - 10:30 - Ummæli ()

Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup er látinn 97 ára að aldri

sigurbjorn-einarsson-biskup.jpgDr. Sigurbjörn Einarsson biskup er látinn. Hann var 97 ára þegar hann lést.
Sigurbjörn var vígður biskup yfir Íslandi árið 1959, þá 47 ára gamall. Hann gegndi embættinu til ársins 1981.

Sigurbjörn fæddist 30. júní 1911 á Efri Steinsmýri í Meðallandi, Vestur-Skaftafellssýslu.

Foreldrar hans voru Magnús Kristinn Einar Sigurfinnsson, bóndi á Efri–Steinsmýri í Meðallandi, og Gíslrún Sigurbergsdóttir, húsfreyja.

Sigurbjörn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1931 og nam almenn trúarbragðavísindi, klassísk fornfræði og sögu við Uppsalaháskóla. Hann lauk þaðan prófi í grísku, fornfræðum og sögu árið 1936 og hlaut cand. fil.- gráðu frá heimspekideild Stokkhólmsháskóla árið 1937.

Kandídatsprófi í guðfræði lauk hann frá Háskóla Íslands árið eftir.

Sigurbjörn stundaði framhaldsnám í nýja-testamentisfræðum við Uppsalaháskóla 1939, trúfræði við Háskólann í Cambridge sumarið 1945 og framhaldsnám veturinn 1947-48, meðal annars í Basel.

Hinn 1. september árið 1939 var séra Sigurbjörn Einarsson settur sóknarprestur í Breiðbólstaðarprestakalli á Skógarströnd. Hann var vígður í september sama ár.
Sigurbirni var veitt Hallgrímsprestakall í janúar 1941 og þjónaði þar til 1944 þegar hann var skipaður dósent í guðfræði við Háskóla Íslands þar sem hann hafði verið settur kennari.

Hann var skipaður prófessor í guðfræði 1949 og gegndi því starfi til 1959 er hann var vígður biskup Íslands. Sigurbjörn þjónaði sem biskup Íslands til ársins 1981.

Þegar Sigurbjörn lét af embætti biskups Íslands sinnti hann margvíslegum verkefnum, meðal annars kennslu og ritstörfum. Hann var meðal annars leiðbeinandi á kyrrðardögum í Skálholti frá upphafi þeirra og síðast nú í janúar 2008.

Sigurbjörn var einn afkastamesti predikari sinnar samtíðar og sinnti þeirri köllun sinni til hinstu stundar.

Þá gegndi Sigurbjörn Einarsson fjölmörgum félags-og trúnaðarstörfum. Hann var meðal annars formaður bókagerðarinnar Lilju frá stofnun 1943 til 1959, formaður Þjóðvarnarfélags Íslendinga 1946 – 50, formaður Skálholtsfélagins frá stofnun þess 1949.

Hann sat í stjórn Hins íslenska Biblíufélags frá 1948 og var forseti þess 1959-81, forseti Kirkjuráðs og Kirkjuþings 1959-81 og sat í stjórn Nordiska Ekumeniska Institutet 1959 – 81.

Sigurbjörn var formaður sálmabókarnefndar 1962-72, formaður þýðingarnefndar Nýja testamentisins 1962-81 og sat í nefnd á vegum Lúterska heimssambandsins um trúariðkun og trúarlíf 1964-68. Hann var formaður Listvinafélags Hallgrímskirkju 1982-87 og Skólanefndar Skálholtsskóla 1972-81.

Árið 1961 var Sigurbjörn kjörinn heiðursdoktor í guðfræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Winnipeg 1975. Hann varð heiðursfélagi Prestafélags Íslands 1978, Félags íslenskra rithöfunda 1981, Hins íslenska Biblíufélags 1982 og Prestafélags Suðurlands 1987.

Á ritvellinum var Sigurbjörn biskup afkastamikill, bæði á sviði fræðibóka, þýðinga, trúarrita og sálma.

Sigurbjörn kvæntist árið 1933 Magneu Þorkelsdóttur. Hún lést 10. apríl 2006. Börn þeirra eru: Gíslrún, kennari, Rannveig, hjúkrunarfræðingur, Þorkell, tónskáld, Árni Bergur, sóknarprestur, d. 2005, Einar, prófessor við HÍ, Karl, biskup Íslands, Björn, sóknarprestur í Danmörku, d. 2003, og Gunnar, hagfræðingur, búsettur í Svíþjóð.

Myndina tók Gunnar Salvarsson.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar