eyjan.is

Föstudagur 29.08.2008 - 15:30 - Ummæli ()

Guðjón Friðriksson vill að Matthías Johannessen taki af netinu „lygaþvælu“ um sig

dagbok.jpgGuðjón Friðriksson, sagnfræðingur, biður Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, í grein í blaðinu í dag, að fjarlægja af netinu úr dagbók ritstjórans þar sögu um sig, sem hann segir vera „lygaþvælu“.

Ekki er að sjá á færslunni á netinu að Matthías hafi enn orðið við beiðni Guðjóns.

Guðjón segir dagbækur Matthíasar töluvert í umræðunni eftir að hann fór að birta þær á netinu og margir hafi greinilega orðið til þess að lesa þær. „Á einum stað í þessum færslum er spunnin upp um mig slík lygaþvæla að ég get ekki annað en beðið þig að taka hana af netinu og helst strika yfir hana í dagbókinni.“

Guðjón rekur síðan söguna, sem Matthías segist hafa eftir hinni góðkunnu kennslukonu og rithöfundi Jennu Jensdóttur. Sagan gengur út á að Guðjón hafi kennt stúlku í Ármúlaskóla sem hafi skrifað ritgerð upp á 9 um ljóð Matthíasar en Guðjón gefið henni 4 í einkunn.

Í dagbókarfærslunni, frá 8. október 1998, segir: „Jóhanna bar sig upp undan þessu við Jennu, fyrrverandi kennara sinn, en hún tók málið upp við Kristján J. Gunnarsson, fyrrum fræðslumálastjóra, sem síðar hefur fengist við skáldskap og ort nokkrar ljóðabækur, auk skáldsögu; góður maður og gegn. Hann trúði vart því sem hann heyrði, hafði samband við Magnús skólastjóra Ármúlaskóla og kallaði inn allar ritgerðirnar svo unnt yrði að fara yfir þær og bera saman. Þá kom í ljós að ritgerð Jóhönnu var upp á 9. Það kom engum á óvart sem til þekktu. En upp úr þessu var Guðjóni Friðrikssyni sagt upp og hrökklaðist hann þá til Ísafjarðar. Þar gerði hann sér lítið fyrir og hóf ofsóknir á hendur Jennu og Hreiðari sem barnabókahöfundum. Það voru hefndirnar.“

Guðjón segir m.a. um dagbókarfærsluna í grein sinni í morgun: „Um þetta er í stuttu máli það að segja að ég hef aldrei kennt Jóhönnu Eiríksdóttur, aldrei kennt í Ármúlaskóla, aldrei svo ég muni í kennaratíð minni fengið ritgerð í hendur um ljóð Matthíasar Johannessen, aldrei verið kærður fyrir einkunnagjöf, aldrei verið sagt upp störfum við neinn skóla, þaðan af síður hrökklast til Ísafjarðar og aldrei ofsótt Jennu og Hreiðar. Ég var hins vegar kennari í 3 ár við Menntaskólann á Ísafirði af fúsum og frjálsum vilja en það er önnur saga.“

Nýbirtar dagbækur Matthíasar eru frá árunum 1996 til 1998 og fáeinar færslur eru komnar frá 2001. Hann sagðist í samtli við Morgunblaðið í síðustu viku eiga eftir að birta fleiri dagbókarfærslur frá árunum 1999 til 2001. Hann segir dagbækurnar endurspegla hugmyndir hans og afstöðu og „lýsi honum sjálfsagt honum betur en öðrum.“

„Þar er auðvitað ekki neinn endanlegur sannleikur né ljósmynd af þeim sem ég nefni. En sýnir þó hvernig ég upplifi viðmælendur mína. Þetta eru mín viðbrögð við umhverfinu. Mín sagnfræði. Hugverk mín sem ritstjóra og þó einkum rithöfundar og þá væntanlega eitthvað fróðlegar sem slíkar. Hver og einn sér umhverfið sínum augum án þess að lýsingar hans þurfi að vera ósannar, eins og sumir eru að reyna að koma inn hjá fólki….Það sem var trúnaður fyrir áratug eða meira er enginn trúnaður í dag. Ef svo væri þá hefðum við aldrei eignast neina sagnfræði.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is