Sunnudagur - 31.8 2008 - 11:04 - Ummæli ()

Guðjón lögsækir Matthías fjarlægi hann ekki dagbókarfærslu og biðji sig afsökunar

gudjon-fridriksson.jpgGuðjón Friðriksson sagnfræðingur segist ákveðinn í að lögsækja Matthías Johannessen, fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins, ef hann biðst ekki afsökunar og fjarlægir dagbókarfærslu um sig á netinu.

Morgunblaðið hefur um helgina kannað án árangurs sannleiksgildi dagbókarfrásagnarinnar, sem Guðjón segir lygaþvælu hvað sig varðar. Hana er að finna í dagbókum ritstjórans sem birtar eru á netinu. Færslan er þar enn.

Guðjón, sem bað Matthías í Morgunblaðsgrein í gær um að fjarlægja söguna af netinu,  sagði í samtali við Eyjuna í gær, að Matthías þyrfti bara að hringja í sig og biðjast afsökunar. Hann sagði blaðamann Morgunblaðsins hafa gengið úr skugga um það að sagan stenst ekki. „Þetta er ekki viðkunnanlegt,“ sagði Guðjón. „Maður skynjar við lesturinn á þessu og öðru um mig í dagbókunum, að þarna var búið að rógbera mann öll þessi ár.“

Guðjón telur vel hugsanlegt að Matthíasi hafi orðið uppsigað við sig á þessum árum í kjölfar ritdóms Guðmundar Andra Thorssonar um ævisögu Guðjóns um Jónas frá Hriflu, þar sem sú bók var talin mun fremri ævisögu Matthíasar um Ólaf Thors.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar