Björgólfur Thor Björgólfsson verður ekki einn aðalfjárfestanna í uppbyggingu þriðju-kynslóðar farsímanets í Kanada eins og til stóð.
Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs, var í fjárfestahópnum sem hreppti hnossið í útboði stjórnvalda á farsímaleyfunum í sumar og mun greiða sem svarar rúmlega 36 milljarða króna fyrir.
Fyrir hópnum fer Anthony Lacavera aðaleigandi kanadíska farsímafyrirtækisins Globalive en með honum er egypski kaupsýslumaðurinn Naguib Sawiris og fjarskiptaveldi hans Orascom.
Í frétt itWorldCanada um fjármögnun verkefnisins í dag er haft eftir Lacavera að uppbygging farsímanetsins muni kosta jafnvirði um 160 milljarða króna á næsta áratug og þar af sé Orascom tilbúið að koma með hátt í 60 miljarða á næstu þremur til fjórum árum.
Hann segir þá í viðræðum við fleiri hugsanlega fjárfesta og framleiðendur búnaðar, en að Björgólfur Thor sé ekki einn þeirra. Lacavera vildi ekki segja hvenær Björgólfur hafi ákveðið að hætta þáttöku sinni í samflotinu en bætti við að „þegar upp var staðið hafi tækifærið ekki verið nægilega stórt fyrir þá báða, Björgólf Thor og Sawiris.
