eyjan.is

Þriðjudagur 09.09.2008 - 15:40 - Ummæli ()

Reykjavíkurborg: Stefna mörkuð í málefnum utangarðsfólks

utangards.jpgSamkvæmt stefnu sem Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag verða megináherslur borgarinnar í málefnum utangarðsfólks þær að efla samstarf og forvarnir, auka reglubundna þjónustu, styrkja tímabundin úrræði og fjölga langtímaúrræðum. Stefnu þessari á að fylgja til ársins 2012.

Í yfirlýsingu frá Velferðarráði kemur fram að unnið hafi verið að stefnumörkun í málum utangarðsfólks frá því í janúar 2007  í samvinnu allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti  í borgarstjórn.

Til vinnunar hafa jafnframt verið kallaðir hagsmuna -og fagaðilar í málefnum utangarðsfólks til að tryggja að tekið sé tillit til ólíkra viðhorfa og faglegra sjónarmiða.

Leitast á við að koma í veg fyrir útigang meðal annars með því að efla þjónustu við þá sem eru eða eiga á hættu að verða utangarðs og að tryggja öllum viðunandi húsaskjól til skemmri eða lengri tíma.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is