Lárus Elíasson, forstjóri jarðhitafyrirtækisins Enex hefur ekki fengið að koma á skrifstofu sína í fyrirtækinu í viku. „Það kom ósk frá stjórninni um að ég kæmi ekki á skrifstofuna. Geysir Green er þarna í meirihluta,“ segir Lárus í samtali við Fréttablaðið í dag.
Starfsmenn Enex gerðu Geysi Green Energy (GGE) tilboð fyrir rúmri viku í 73 prósenta hlut þess í fyrirtækinu sem gildir til morguns. „Það er ekki eins og við höfum leitað til fjárfesta um að bola eiganda út. Þetta er tilraun starfsmanna til að leysa ágreining eigenda,“ segir Lárus.
Samkvæmt fréttinni hafa starfsmenn Enex verið mjög óánægðir með samskipti eigendanna, REI og GGE. Þeir hótuðu í lok ágúst að ganga út, leystu eigendur ekki úr sínum málum.
Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður Enex og framkvæmdastjóri GGE, segir efni tilboðsins vera trúnaðarmál.
Eigendur og starfsmenn munu hafa rætt um að Enex verði skipt upp og starfsemi félagsins í Kína og Bandaríkjunum fylgi GGE í skiptum fyrir hlutinn.
- ikh
