Fimmtudagur - 18.9 2008 - 16:30 - Ummæli ()

Suður Kórea: Blindir nuddarar hótuðu að hoppa fram af brú

blindurnuddari.jpgLögreglan í Suður Kóreu handdtók 26 blinda nuddara í dag fyrir að hóta að stökkva fram af brú en undanfarnar vikur hafa blindir staðið í miklum mótmælaaðgerðum í Seoul.

Nuddararnir blindu mótmæla því að Kóreönsk yfirvöld hafa í hyggju að gefa fólki með sjón starfsleyfi til að nudda en til þessa hefur einungis blindum verið leyft að starfa löglega við þessa grein.

Blindu nuddararnir  meina að með þessu munu um 15.000 sjóndaprir nuddarar verða fyrir alvarlegri tekjuskerðingu. Í Suður Kóreu eru um 216.000 blindir einstaklingar en síðan 1963 hefur einungis blindum  verið leyft að stunda starfið löglega. Eftirspurnin eftir nuddi er þó meiri en framboð og því hyggjast þarlend stjórnvöld víkka rammann og leyfa þar með öllum sem vilja leggja stund á þetta starf.

Í Suður Kóreu hafa fatlaðir löngum mætt miklum fordómum og möguleikar þeirra á að afla sér tekna hafa verið takmarkaðir.

Þrír hafa látist í mótmælunum en fjölmargir hafa hætt lífi sínu m.a með því að stökkva fyrir járnbrautarteina eða af byggingum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar