„Q Iceland Finance ehf., dótturfélag í eigu Q Iceland Holding ehf., sem er eignarhaldsfélag hans hátignar Sheikh Mohammed Bin Khalifa Al-Thani, hefur keypt 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Q Iceland Finance keypti alls 37,1 milljón hluta á genginu 690 kr. á hlut og verður þar með þriðji stærsti hluthafi bankans.
Hans hátign Sheikh Mohammed er í konungsfjölskyldunni sem verið hefur við völd í Qatar frá því á nítjándu öld.“
Þannig hljóðar tilkynning á vef Kaupþings í dag. Fjárfestingin í Kaupþingi nemur 26 milljörðum króna samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings sagði í samtali við fréttastofu RÚV í morgun að kaupin hefðu átt sér nokkurra mánaða aðdraganda.
„Við höfum fylgst náið með Kaupþingi í nokkurn tíma og teljum þetta góða fjárfestingu. Staða Kaupþing er sterk og við höfum trú á stefnu og stjórnendum bankans, enda hefur Kaupþing náð góðum árangri við þær erfiðu aðstæður sem nú eru á markaðnum og sýnt fram á getu til þess að breytast og laga sig að nýjum veruleika í bankastarfsemi. Við lítum á hlut okkar í Kaupþingi sem langtímafjárfestingu og hlökkum til að eiga góð samskipti við stjórnendur bankans,“ segir Sheikh Mohammed í fréttinni.
Sheikh Mohammed bin Khalifa Al-Thani er bróðir emírsins af Katar, Sheikh Hamad Bin Khalifa Al Thani. Hann gegndi jafnframt embætti aðstoðarforsætisráðherra landsins til ársins 2007.
Í júní í sumar var tilkynnt um kaup hans í öðru íslensku félagi, Alfesca, fyrir tæpan fimm og hálfan milljarð króna. Þá kom fram í frétt Viðskiptablaðsins að Sheikh Mohammed bin Khalifa Al-Thani og stjórnarformaður Alfesca, Ólafur Ólafsson hefðu þekkst lengi auk þess sem forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefði átt fund með Al Thani í maí sl. í Doha höfuðborg Katars. Áður, eða í janúar á þessu ári var Ólafur Ragnar í opinberri heimsókn í Katar.
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings segir: „Okkur er mikil ánægja að bjóða hans hátign Sheikh Mohammed Bin Khalifa Al-Thani velkominn í hluthafahóp Kaupþings. Það hefur lengi verið stefna okkar að laða nýja fjárfesta að bankanum og því er ánægjulegt að sjá að við höfum nú náð að breikka hluthafahópinn enn frekar. Við hlökkum til þess að vinna með hans hátign Sheikh Mohammed í framtíðinni.“
Kaupþing opnaði skrifstofu í Katar í upphafi þessa árs.
