Fulltrúadeild Bandaríkjaþings felldi í dag björgunaráætlun stjórnvalda í atkvæðagreiðslu. 228 greiddu atkvæði gegn áætluninni, en 205 voru með.
Rætt er um að endurtaka atkvæðagreiðsluna, eða leggja fram frumvarpið í breyttri mynd.
Ákveðið var að þingið kæmi aftur saman á fimmtudag og fjallaði um málið.
Umræður fyrir atkvæðagreisluna leiddu í ljós mun meiri andstöðu við áætlunina en gert hafði verið ráð fyrir. Hún er skýrð með mikilli andstöðu við aðgerðirnar meðal almennings og þingmenn hafi ekki viljað hætta á reiði kjósenda sinna svo rúmum mánuði fyrir kosningar.
Verðbréfamarkaðurinn kolféll vegna þessa, Dow Jones vísitalan um 778 stig, sem er það mesta sem hún hefur fallið á einum degi. Fyrri metdagurinn í hruni vísitölunnar var dagurinn eftir 11. september 2001, þegar hún féll um 721 stig.
