Miðvikudagur - 1.10 2008 - 22:56 - Ummæli ()

Skoðið nýja fjárlagafrumvarpið

 

fjarlog2009.jpgÁrni M. Mathiesen fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp ársins 2009 á blaðamannafundi í dag. Frumvarpið er nú í fyrsta sinn sett fram sem hluti rammafjárlaga til næstu fjögurra ára, sem ríkisstjórnin hefur samþykkt.

Hægt er að sjá frumvarpið og útgjaldaliði þess í myndrænu formi hér (sjá nánar neðar í fréttinni).

Halli á ríkissjóði verður 56,9 milljarðar króna á næsta ári, eða um 3,7% af vergri landsframleiðslu. Áætlaðar tekjur ríkissjóðs árið 2009 verða 450,5 milljarðar en gjöldin verða 507,4 milljarðar. Hallareksturinn 2010 og 2011 verður minn og afkoman á að vera komin í plús árið 2012.

Frumvarpið sjálft er doðrantur sem fáir hafa undir höndum en hægt er að lesa sig í gegnum á Fjárlagavef Fjármálaráðuneytisins. Þar er það þó ekki mjög aðgengilegt og ekki auðvelt að átta sig á stóru samhengi hlutanna.

Fyrirtækið DataMarket brást skjótt við og vann gögnin á meðfærilegara form til birtingar á netinu. Útkoman er vefsvæði þar sem hægt er að sjá með þægilegum hætti í hvað stjórnvöld ætla að nota peningana okkar á komandi ári.

Á forsíðunni er yfirlit yfir ráðuneytin, raðað eftir útgjaldaröð. Með því að smella á súluna fyrir eitthvert ráðuneytið birtist skipting útgjalda þess og svo koll af kolli. Gögnin ná reyndar bara 3 þrep niður, en fjárlagafrumvarpið nær einfaldlega ekki lengra, að sögn Hjálmars Gíslasonar, eins aðstandenda verkefnisins. „Næsta þrep eru rekstraráætlanir einstakra stofnana og þær eru ekki fáanlegar að svo komnu máli.“

„Ég fullyrði að aldrei hefur verið jafnauðvelt að túlka, rýna og gagnrýna fjárlagafrumvarp á Íslandi eins og með þessu einfalda tóli,“ segir Hjálmar á vefsíðu sinni, þar sem nánar er fjallað um verkefnið og möguleika þess.

Í frumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir að áfengisgjald og tóbaksgjald hækki um 11,5% í ársbyrjun 2009.

Þá er reiknað með, samkvæmt lögum sem þegar hafa verið samþykkt, að persónuafsláttur einstaklinga hækki um 24.000 krónur á næsta ári, sem samsvarar 18% hækkun skattleysismarka. Persónuafslátturinn er einnig verðtryggður. Tekjuskattur á fyrirtæki lækkar svo úr 18% í 15% frá næstu áramótum.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar