eyjan.is

Miðvikudagur 01.10.2008 - 16:41 - Ummæli ()

Stórasta landið-Viðtal og texti

Veður fullur í frænkurnar með Ólafi F

Erpur Eyvindarson, sem notar listamannsnafnið Blazroca þegar hann rappar, ætlar að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu á næstu misserum. Nákvæmlega hvenær er ekki ljóst enda margir möguleikar í boði þegar það kemur að útgáfumálum. Eyjan sló á þráðinn til Erps og fékk að vita aðeins meira.

Hvenær kemur platan út?

„Þessi hefðbundna plötuútgáfa er öll að umturnast út af netinu og nú á ég bara eftir að taka endanlega ákvörðun um hvaða leið skal velja. Netið eða gömlu leiðina. Get því ekki svarað þessu nákvæmlega alveg strax en einhverntíma á næstu sex mánuðum.“

Hvaða áherslur eru í gangi á þessari plötu?

„Ég segi bara alltaf frá því sem ég er upptekin af hverju sinni. Það geta verið mismunandi hlutir frá degi til dags. Ef ég er fullur þá segi ég frá því, ef ég er að hugsa um stjórnmál eða þjóðfélagsmál þá fjalla ég um það, samskipti við annað fólk, kvenfólk, hvað sem er. Textarnir eru jafn ólíkir og dagarnir eru ólíkir.“

Þín skoðun á fjármálasnjóflóðinu?

„Þetta er ógeðslega beisikk. Þetta er bara þannig að það er búið að ljúga að öllum að einkavæðing sé alltaf besti kosturinn í öllum viðskiptum og öllum rekstri og ef það er svona satt, af hverju þarf þá ríkið alltaf að skeina þeim þegar þeir hafa skitið á sig? Við -almenningur? Stórasta land í heimi fjallar um að við höfum haldið að þeir sem gerðu Ísland að stórasta landi í heimi væru banka-apar sem hafa verið að djöggla matador peningum síðustu ár. Núna er ballið búið og þá vill enginn vita af þessu liði. Ég er bara að benda á að þeir sem hafa gert Ísland að stórasta landi í heimi er þetta fólk: Laxness, Vigdís, Þórbergur, handboltalandsliðið og fleiri. Fólk sem hefur verið að fást við alvöru verðmæti. Það sem skiptir í raun máli. Við erum rík af því við eigum alvöru hetjur sem eru það bæði í góðæri og hallæri.“

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

“Stórasta landið í heimi” – BlazRoca

Kreppa og verðbólga
en menn vilja vera kóngar með kvóta
í Limmum og Bimmum þeir kóka
borga kúlur fyrir skópar
og drasl sem er óþarft
keyra á græðgi og öfund
vilja lifa kafla úr gömlum konungasögum
rokka kögur og fjöður
set hyskið í snöru,
fyrir land míns föður
Þetta er hiphopp og við söggum
Köstum upp töggum, tökum við höggum frá löggum
Ekki okkar kreppa en við strögglum
En Ísland er land mitt svo við flöggum,

John Lennon dreymdi,
en hippar eru gleymdir
og við erum reiðir í mínu teymi
svo það nístir inn að beini
Stórasta landið í heimi
Handboltinn
Stórasta landið í heimi
Laxness

Stórasta landið í heimi
Jón Páll
Stórasta landið í heimi
Vigdís
Stórasta landið í heimi
Þórbergur
Stórasta landið í heimi
Steinn Steinarr
Stórasta landið í heimi

Slituð Kosovo frá Júgóslavíu,
sjálfstæði Georgíu var líka í fínu,
en hvað með Suður Ossetíu,
Baskaland og Katalóníu? Ég fæ klígju
Þorgerður með ræðu, ó tík plís
ef einhver ætti að tala væri það Óli alí grís
Þorgerður Katrín er hirðfífl
og þetta er P.R. grín

Út með næstu vél, þegar liðinu fór að ganga vel
milljónir sem hún skuldar þér
en ekki tala um ESB
því möppudýrin eru þó skárri hér, en í Brussel
eins og Helgi Hós kasta ég skyrinu,
þau reyndu að ræna sigrinum,
fer yfir um, ríf Þorgerði niður af sviðinu
því hún var aldrei í handboltalandsliðinu

Reppa Ísland mest
við hvert tækifæri sem gefst
og veð fullur í frænkurnar með Ólafi F.
Mamma og pabbi
Stórasta landið í heimi

Mitt blóð
Stórasta landið í heimi
Blazroc
Stórasta landið í heimi
Lúllimon
Stórasta landið í heimi
Rottweiler
Stórasta landið í heimi
Allt mitt krú
Stórasta landið í heimi

Ísland
Stórasta landið í heimi
Vestur í Austur
Stórasta landið í heimi
Suður í Norður
Stórasta landið í heimi
Ísland


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is