Jónína Benediktsdóttir í Silfri Egils:
„Það á að frysta eignir eigenda bankanna og gera það sama við Kaupþing og Landsbankann og gert var við Glitni. „Hætta að gapa upp í þessa drengi, Sigurð Einarsson og Hreiðar Má Sigurðsson.“
Hún segir eignatengsl eigenda og stjórnenda Kaupþings og Glitnis þurfa rannsóknar við. „Þetta er allt sama batteríið“ segir Jónína, og að eigendur og stjórnendur, menn eins og Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson haldi á öllum þráðum persónulega í hendi sér. Jónína segist telja að saknæmir atburðir hafi átt sér stað en að pólitíkin á Íslandi nái upp í Hæstarétt og refsiramminn sé ekki til.
Hún segir að það eigi að hætta að ráðast á þá menn sem hafa sagt sannleikann, Davíð Oddsson og Björn Bjarnason.
