Mánudagur - 6.10 2008 - 02:12 - Ummæli ()

Sérstök tilkynning frá ríkisstjórninni um að innstæður verði tryggðar að fullu

skjaldarmerki.jpgRíkisstjórn Íslands sendi í nótt frá sér sérstaka tilkynningu um að innstæður í innlendum viðskiptabönkum, sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi verði tryggðar að fullu.

Tilkynningin kemur í kjölfar sams konar munnlegrar áréttingar Geirs H. Haarde með fréttamönnum á fundi í gærkvöldi. Þar lýsti forsætisráðherra því yfir að ekki væri lengur talin ástæða til að grípa til sérstakra aðgerða eftir fundarhöld helgarinnar.

Tilkynningin er eftirfarandi:

„Ríkisstjórn Íslands áréttar að innstæður í innlendum viðskiptabönkum, sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi verða tryggðar að fullu.

Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja sem trygging innstæðudeildar Tryggingasjóðs innstæðueigenda tekur til.

Reykjavík, 5. október 2008″

Tilkynningin var send úr forsætisráðuneytinu á öðrum tímanum í nótt en er dagsett 5. október. Samkvæmt upplýsingum sem finna má t.d. á vefsíðu Talsmanns neytenda tryggir  Tryggingarsjóður á hverjum tíma að lágmarki fjárhæð sem samsvarar 20.887 evrum (nú rúmlega 3 m.kr.).

Samskonar tilkynning hefur verið send út í Bretlandi um innstæður á innlánsreikningum hjá lánastofnunum Kaupþings og Landsbankans þar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar