eyjan.is

Þriðjudagur 07.10.2008 - 14:32 - Ummæli ()

Rússalán: Seðlabankinn of fljótur á sér – Sendiherrann hringdi í Geir og leiðrétti bankann

david.jpgSeðlabankinn virðist í morgun hafa verið of fljótur á sér í að tilkynna 4 milljarða evra lán frá Rússum.

Bankinn sendi fá sér fréttatilkynningu um klukkan 14, þar sem hann áréttaði fyrri tilkynningu bankans, frá í morgun, um að „Rússland myndi veita Íslandi lánafyrirgreiðslu að upphæð 4 milljarðar evra.“

Í tilkynningu bankans áðan segir einfaldlega: „Í framhaldi af frétt Seðlabanka Íslands frá því fyrr í morgun um viðræður milli Rússlands og Íslands skal áréttað að löndin hafa ákveðið að hefja viðræður um fjármálaleg atriði innan fárra daga.“

Fréttatilkynning bankans í morgun var eftirfarandi, orðrétt:

„Sendiherra Rússlands á Íslandi, Victor I. Tatarintsev, tilkynnti formanni bankastjórnar Seðlabankans í morgun að staðfest hefði verið að Rússland myndi veita Íslandi lánafyrirgreiðslu að upphæð 4 milljarðar evra.

Lánið mun verða til 3 – 4 ára á kjörum sem munu verða á bilinu 30 – 50 punktum yfir Libor-vöxtum. Putin forsætisráðherra Rússlands hefur staðfest þessa ákvörðun.

Forsætisráðherra Íslands hóf athugun á möguleikum á slíkri lánafyrirgreiðslu á miðju sumri. Sérfræðingar Seðlabanka og stjórnarráðsins munu halda til Moskvu mjög fljótlega.

Lánafyrirgreiðsla af þessu tagi mun treysta mjög gjaldeyrisforða Íslands og styrkja grundvöll íslensku krónunnar.“

Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir í samtali við Bloomberg-fréttastofuna, í dag að fyrri tilkynninginn hefði verið röng, að ofmælt hafi verið um samkomulagið í tilkynningunni í morgun. Haft er Davíð að viðræður við Rússa um stórt lán séu í gangi og samningar að hefjast.Hann segist bjartsýnn á að viðræðurnar skili árangri og að hvers konar aðstoð frá Rússlandi yrði vel þegin.

Davíð segir þar jafnframt að „við þá sé að sakast í því sem ofsagt var í yfirlýsingunni“ um stjórnvöld hefðu samþykkt 4 milljarða evra lán.

Í annarri frétt hefur Bloomberg eftir Alexei Kudrin fjármálaráðherra Rússlands að þeim hafi borist beiðni frá íslenskum stjórnvöldum og að þeir hafi tekið „jákvætt“ í þá beiðni.

Í sömu Bloomberg frétt er haft eftir Lars Christensen gjaldeyrissérfræðingi Danske Bank að þeir séu að verða sannfærðir um að íslensk stjórnvöld ráði ekki við stöðuna án utanaðkomandi hjálpar og að aðstoð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þurfi þá að koma til og hugsanlega eitthvert framlag af hálfu ríkisstjórna Norðurlandanna.

Á  Forbes.com vefnum er fjallað um misskilningin með lánið sem „hafi farið frá þvi að vera frágengið mál í morgun í það að vera á samningsstigi.“ Þar segir að Seðlabankinn hafi einfaldlega farið fram úr sér og að Tatarintsev sendiherra  hafi hringt í Geir H. Haarde til að koma málum á hreint.

Lánsupphæðin sem nefnd er, fjórir milljarðar evra, samsvarar um 680 milljörðum króna á því gengi sem gilti þegar yfirlýsing sendiherrans var gefin, en um 524 ma. kr. miðað við fastsetta evrugengið 131 kr.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is