Miðvikudagur - 8.10 2008 - 01:06 - Ummæli ()

Davíð misskildi rússneska sendiherrann í símanum kl 6:45 í gærmorgun

david-victor.jpgDavíð Oddsson seðlabankastjóri útskýrði í Kastljósi í gærkvöldi hvernig stóð á því, að Seðlabankinn fór framúr sér í gær og sagði í fréttatilkynningu að 4 milljarða evra lán frá Rússum væri í höfn. Bera þurfti tilkynninguna til baka því það á eftir að semja um lánið. Davíð lýsti þessu svona:

„Það er náttúrulega margt í þessari spennu sem nú er, sem fer kannski í tilkynningum öðruvísi en ætlað er. Rússneski sendiherrann hringdi í mig, ég held kortér fyrir sjö í morgun, og sagði frá því að menn væru í jákvæðum stellingum. Ég skildi það svo að það væri ekki bann á það að tilkynna hvernig horfði um þetta vinarbragð Rússanna. En síðan var talið að við hefðum kannski gengið heldur langt í því á þessu stigi að útskýra málið í smátriðum. Og svo bættist við að það voru ekki allir í stjórnkerfinu í Moskvu með upplýsingar um málið.

En meginmálið er samt að það stefnir í viðræður, sem fjármálaráðherra Rússa segir að verði teknar með mjög jákvæðu hugarfari og það liggur fyrir að Putin, forsætisráðherra Rússlands, heimilaði það sérstaklega með undirskrift sinni að í þessar viðræður yrði farið. Þannig að menn fara með mjög jákvæðum huga í það.“

Davíð sagði að það væri miklu betra í markaðsheimi ef enginn enginn svona misskilningur væri á ferðinni og sagðist hafa farið í beina útsendingu hjá Bloomberg fljótlega og leiðrétti þetta. „En meginatriðið er að þetta er vonandi að verða að veruleika – það væri best að tala varlega núna – og sendinefnd vonandi að fara út á næstu dögum til viðræðna við Rússa,“ sagði Davíð í Kastljósviðtalinu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar