Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra segir það vera grafalvarlegt mál í stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar ef Davíð Oddsson seðlabankastjóri standi í vegi fyrir samkomulagi um aðstoð frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, sem sé eini kosturinn sem Ísland hafi nú til að bjarga efnahagslífinu.
Jón Baldvin segir líka að ef ríkisstjórnin eigi að lifa þurfi forystumenn stjórnarflokkanna að handsala samkomulag um að við byrjum að vinna að inngöngu í Evrópusambandið. „Ef það gengur ekki, er ekkert annað að gera í lýðræðisríki en að leggja málið í dóm kjósenda.“
Slíkra úrslitakosta varðandi stjórnarsamstarfið af hálfu Samfylkingar hefur ekki gætt hingað til í ummælum forystumanna flokksins í ríkisstjórn, en flestir ráðherrar flokksins hafa hins vegar að undanförnu sagt að bankastjórn Seðlabankans þyrfti að víkja.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður flokksins sagði á fundi flokksins um miðjan dag í dag, að það væri það grundvallaratriði að jafnaðarmenn væru í ríkisstjórn á Íslandi “í þeirri orrahríð sem er núna.“
Jón Baldvin sagði í þættinum Silfri Egils í Sjónvarpinu í dag að hann hefði traustar heimildir fyrir því innan úr Sjálfstæðisflokknum að Davíð stæði harður gegn samkomulagi við IMF. „Ef þetta er rétt, þá er það nú ekki bara að hann axli ekki ábyrgð af skipbroti sjálfstæðrar peningamálastefnu og hruni ríkisfjármálastefnu sem hann var líka ábyrgur fyrir heldur er hann að þvælast fyrir á strandstaðnum líka. Þetta gengur ekki. Þetta er ekki hægt.“
Jón Baldvin líkti í viðtalinu stöðunni núna við strandstað: Þjóðarbúið sé greiðsluþrota, fjármálakerfið hrunið, gengið sem var í frjálsu falli er ekki lengur til, krónan er farin og ekki nothæf og utanríkisverslun er strand. Traust Íslands og mannorð í útlöndum er farið og eignabruni mjög hraður. Hann segir okkur á byrjuanrreit þessarra erfiðleika. Fyrirtæki muni hrynja, atvinnuleysi aukast, eignamissir fjölda fólks vofi yfir svo og skertur lífeyrir eldra fólks.
Hann sagði þyrfti ekki eini sinni að ræða það að halda í krónuna. „Það er búið mál. Hættum að tala um þessa vitleysu.“
„Á strandstaðnum er núna verið að ræða björgunarleiðangur. Og þar er númer eitt: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn versus Rússalánsvon. Ef það er rétt að seðlabankastjórinn sé nú genginn í lið með Rússum og vilji Rússalán, en sé andvígur samningi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þá er það auðvitað grafalvarlegt mál í þessu stjórnarsamstarfi,“ sagði Jón.
„Ef í öðru lagi seðlabankastjórinn harðneitar að bera ábyrgð á gjörðum sínum og víkja ásamt með öðrum í Seðlabankastjórninni þannig að hægt sé að endurreisa traust… þá getur stjórnin ekki ráðið við verkefni sitt.“
Jón Baldvin segir einfaldlega ekki hægt annað en að skipt verði um seðlabankastjóra til að byggja upp traust, ekki sé hægt að koma fram fyrir erlenda skuldunauta og stofnanir með þennan sama seðlabankastjóra, alveg sama hvaða nafn maðurinn ber og hver hann er. „Staðreyndin er bara sú að við verðum að skipta þar um áhöfn af því að veið verðum að reyna að byggja aftur upp traust. Það hljótum við að gera með nújum mönnum.“
Jón segir að ef þetta gangi ekki eftir, „að pólitíkusarnir séu ekki til nokkurs nýtir, geta ekki tekið ákvarðanir um hluti eins og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn eða um að nokkur maður beri ábyrgð á óförum okkar, geti ekkik tekið ákvörðun um að marka stefnuna fram í tímann í átt til Evrópusambandins, hvað er þá ríkisstjórn? Hvað er hún að gera?“
