eyjan.is

Mánudagur 27.10.2008 - 15:39 - Ummæli ()

Stjórnmálamenn, seðlabankastjórar og bankastjórar krafnir svara í Iðnó í kvöld

idno.jpgHópur fólks sem krefst beinna viðræðna ráðamanna og almennings efnir til opins borgarafundar í Iðnó í kvöld.

Í opnu bréfi til ráðamanna segir meðal annars að nú, þegar þrjár vikur sé liðnar síðan Geir H. Haarde forsætisráðherra sló upptaktinn að óvissuástandi síðustu vikna í sjónvarpsávarpi, hafi „óvissan um framtíð Íslands stigmagnast og enginn virðist vita í hvað stefnir.“

„Yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar, ráðherra og stjórnar Seðlabankans hafa stangast á, misvísandi skilaboð berast í gegnum fjölmiðla og allar tölur um framtíðarskuldsetningar eru á reiki. Margir Íslendingar óttast framtíðina og atvinnuleysi og eignamissir vofir yfir stórum hópi Íslendinga.“

„Fólkið vill bein svör frá þeim sem völdin hafa, einkum við spurningunni: „Hvernig gat þetta gerst?“ Allan þennan tíma hefur þjóðin verið ávörpuð í gegnum fjölmiðla og enginn ráðamanna þjóðarinnar hefur séð sóma sinn í því að efna til umræðna með almenningi. Með bréfi þessu er skorað á ráðherra, alþingismenn, Seðlabankastjóra, stjórn Seðlabanka og fyrrverandi bankastjóra einkabankanna að mæta á opinn borgarafund sem haldinn verður í Iðnó, mánudaginn 27. október kl. 20:00. Mætið til umræðna við hinn almenna þegn þessa lands!“ segir í bréfinu.

Í almennu fundarboði er fólk hvatt til að koma og spyrja spurninga þar sem hvergi hefur gefist kostur á að tjá sig eða spyrja ráðamenn beinna spurninga.

Fyrirkomulag fundarins verður þannig að fjórir frummælendur hefja umræðuna (5-10 mín hver): Einar Már Guðmundsson rithöfundur, Björg Eva Erlendsdóttir blaðamaður, Lilja Mósesdóttir hagfræðingur og Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur.

Þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og hver sem vill fær þrjár mínútur til að tjá sig úr sal eða spyrja spurninga.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is