Mánudagur - 27.10 2008 - 23:31 - Ummæli ()

Troðfullt hús á borgarfundi í Iðnó

idno1.jpgTroðfullt hús var og mikill hiti í fundarmönnum í Iðnó á opnum borgarafundi þar í kvöld um bankakreppuna og afleiðingar hennar fyrir almenning í landinu.

Samkvæmt mbl.is svöruðu 10-12 alþingismenn boði aðstandenda fundarins um að koma og svara spurningum. Samkvæmt ítarlegri frétt vísis.is var púað á alþingismennina. Fyrirsögn fréttar DV.is af fundinum var „Enginn ber ábyrgð“.

Ekki var af fréttum þessarra þriggja vefmiðla að sjá að neinir ráðherrar eða bankastjórar, hvorki nýju ríkisbankanna né Seðlabanka Íslands, hafi setið fyrir svörum á fundinum.

Sjá líka viðtal hér við Gunnar Sigurðsson leikstjóra, einn skipuleggjenda fundarins, á vísir.is í dag.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar