Þriðjudagur - 28.10 2008 - 08:47 - Ummæli ()

Ólgan í þjóðfélaginu: Þjóðin hlustar aftur á skáldin sín

einar-mar-gudmundsson1.jpgMerkja má aukna eftirspurn í þjóðfélaginu eftir skoðunum skálda, rithöfunda, listamanna og menningarfrömuða á því sem úrskeiðis hefur farið á Íslandi að undanförnu og því sem framundan er. Þetta birtist í þátttöku þeirra í opinberum fundum að undanförnu, skrifum í dagblöð og viðtölum í ljósvakamiðlum.

Þannig er til að mynda mjög hlustað eftir því sem Einar Már Guðmundsson rithöfundur hefur fram að færa. Stutt er síðan honum var úthýst úr þættinum Mannamál á Stöð 2; taldi Einar að það væri að skipun auðmanna sem eiga fjölmiðilinn. Morgunblaðið leggur í dag heila síðu undir ræðuna sem Einar Már flutti á baráttufundinum í Iðnó í gærkvöldi. „Má ekki bjóða yður þjóðskrána?“ heitir greinin.

Skáld og listamenn voru virkir þátttakendur í sjálfstæðisbaráttunni á sínum tíma. Ljóð og sögur blésu almenningi baráttuanda í brjóst. Í stjórnmálabaráttu á 20. öld voru skáldin áberandi í baráttu gegn hernum og NATO og fyrir bættum kjörum verkafólks. Kannski er tími virkrar þátttöku þeirra í þjóðmálum runninn upp að nýju.

Þess má geta að ræða Einars Más í Iðnó er birt í heild á bloggi Ómars R. Valdimarssonar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar