Jón Gerald: Sterling myndbönd
Jón Gerald Sullenberger sendir frá sér þessi myndbönd og segir:
„Hér má sjá 2 myndbönd um Sterling bullið sem er mesta kjaftæðis-bull íslenskrar viðskiptasögu.
Árni Johnsen fékk áralangt fangelsi fyrir 5 milljóna þjófnað.
Landssímastrákarnir fengu áralangt fangelsi fyrir 250 milljóna þjófnað.
Baugsmenn, FL Group og Pálmi Haraldsson í Fons taka þúsundir og aftur þúsundir milljóna króna af hluthöfum almenningshlutafélaga fram og tilbaka án heimildar forstjóra eða stjórnar sem í sitja fulltrúar hluthafa og þeir eru kosnir viðskiptamenn ársins á Íslandi !!!
Hér eru 2 myndbönd sem fjalla um mögulega stærsta auðgunarbrot íslenskrar viðskiptasögu þar sem enginn skilur hvernig verðlaust flugfélag getur kostað íslenskt almenningshlutafélag tugi milljarða króna – hvað þá að stærsti hluti þeirra fjármuna skuli alltaf renna til helstu eigenda og stjórnenda FL Group!
Baugur skuldar 200.000.000.000 krónur.
Stoðir/FL Group skuldar 250.000.000.000 krónur og er í greiðslustöðvun.
Styrkur invest og Stoðir invest skulda einnig tugi milljarða.
En þegar kemur að því að tryggja ítök sín á fjölmiðlamarkaðnum – snara Baugsmenn fram 1.500.000.000 krónur án þess að blikna, stofna nýtt félag og skilja þúsundir milljóna króna eftir á gömlu kennitölunni.
Ég segi bara eins og forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu um daginn:
Guð blessi ísland !“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
