eyjan.is

Þriðjudagur 04.11.2008 - 08:31 - Ummæli ()

Rauðsól Jóns Ásgeirs – Sigurjón Árnason neitar aðkomu að málinu

sigurjon.jpgSigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans, segist ekki hafa komið að kaupum Rauðsólar á fjölmiðlahluta 365 hf.

Eins og Eyjan skýrði frá í dag taldi fréttamiðillinn T24 hafa heimildir fyrir því að fram að Sigurjón hefði verið hugmyndafræðingurinn að baki kaupunum.

Sigurjón segir í tölvupósti til Eyjunnar í dag að þetta sé misskilningur. „Ég hef ekki komið að þessu 365, Rauðsólar máli.“

Kaupin hafa verið mjög umdeild. Hefur verið talað um að verið sé að selja bestu bitana úr fyrirtækinu sem á í miklum fjárhagserfiðleikum og gæti lent í þroti.

Að T24 standa fyrrverandi ritstjórar Viðskiptablaðsins, Óli Björn Kárason og Jónas Haraldsson.

Á vefsíðunni segir:

Fullyrt er að [Sigurjón] vinni nú ötullega að því að „greiða úr“ skuldaflækjum fyrirtækja sem tengjast Baugi við Landsbankann. Sigurjón er sagður vinna náið með Jóni Ásgeiri og tengdum aðilum en Sigurjón og Ari Edwald, forstjóri 365, eru gamlir samherjar  í háskólapólitík og Sambandi ungra sjálfstæðismanna. Þeir sem standa á götuhorninu og velta fyrir sér hvernig kaupin gerast á eyrinni eftir að ríkið yfirtók bankana velta því fyrir sér hvort og þá með hvaða hætti fyrrum yfirmenn banka, sem nú eru í þrotum, koma að málum varðandi uppgjör skulda einstakra viðskiptavina.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is