Uppfært – Sigurjón Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans hefur ekkert hlutverk með höndum á vegum Landsbanka Íslands. Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra tók af öll tvímæli um þetta í samtali við Eyjuna í dag.
„Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins er Sigurjón ekki að störfum fyrir bankann,“ sagði Jón Þór.
Sterkur orðrómur gekk um það í gær að Sigurjón væri enn að störfum í bankanum á nýrri skrifstofu, sem hafi verið sérstaklega innréttuð fyrir hann. Orðið á götunni á Eyjunni sagði m.a. frá þessu í gær.
Heimildir innan viðskiptaráðuneytisins hermdu hinsvegar jafnframt í gær að Landsbankinn væri ekkert að lána Jóni Ásgeiri Jóhannessyni.
Landsbankankinn þvertekur líka fyrir það í dag að Sigurjón sé að störfum fyrir bankann. Samkvæmt heimildarmanni Eyjunnar innan bankans hefur hann engan aðgang að bankanum og noti ekki sitt gamla bílastæði, eins og sagði í bréfi sem birtist í Orðinu á götunni.
Á bloggi Andrésar Jónssonar segir um þetta að starfsemi Sigurjóns sem um ræðir og er til húsa á hæðinni yfir gamla Reykjavíkurapóteki, sé nýtt ráðgjafarfyrirtæki hans.
Andrés segir að meðal viðskiptavina Sigurjóns (auk Baugs og Rauðsólar) séu Samson, stór breskur banki og stór þýskur banki. Einnig einhverjir fleiri erlendir og innlendir aðilar.
„Þeir treysti engum betur en Sigurjóni til að gæta hagsmuna sinna í tengslum við Landsbankann, enda hafi hann verið sá sem setti öll þessi viðskipti saman á sínum tíma.“
Sjálfur neitaði Sigurjón í gær aðkomu að málum Rauðsólar. Hann sagði í tölvupósti til Eyjunnar að þetta væri misskilningur. “Ég hef ekki komið að þessu 365, Rauðsólar máli.”
Landsbankinn sendi líka í gær frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna umræðna um þessi mál:
„Af gefnu tilefni vill Landsbankinn taka fram:
Vegna umræðna á Alþingi og í fjölmiðlum í gær um fjölmiðlafyrirtækið 365 og Landsbankann vill bankinn taka fram að honum er óheimilt lögum samkvæmt að tjá sig um einstök viðskipti eða málefni viðskiptamanna sinna og mun sem fyrr fylgja þeim lögum.
Landsbankinn vekur athygli á því að Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður 365, lýsti því yfir síðdegis í gær að Landsbankinn hefði ekki veitt fyrirgreiðslu vegna viðskiptanna sem þar hafi átt sér stað síðustu daga og að allar upplýsingar um annað væru rangar.
Landsbankinn vill jafnframt taka fram að bankinn kaupir ekki eða selur félög eða fyrirtæki né hefur milligöngu um slíkt nema með skýru umboði frá eigendum viðkomandi félags. Bankinn mun hins vegar sem fyrr vernda viðskiptalega hagsmuni sína og þau verðmæti sem felast í eignum bankans.“
