Föstudagur - 7.11 2008 - 07:13 - Ummæli ()

Mikil gerjun í Evrópuumræðu VG. Stuðningur við ESB meðal væntanlegra kjósenda flokksins

vinstrihreyfingin.jpgMikill gerjun er í umræðu um Evrópumál innan Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, ekki síst í röðum Ungra vinstri grænna. Ungliðarnir köstuðu fyrri Evrópustefnu sinni fyrir róða í byrjun seinasta mánaðar og vinna nú að endurskoðun Evrópustefnunnar.

Þetta kemur fram í fréttaskýringu eftir Ómar Friðriksson blaðamann sem birt er í Morgunblaðinu í dag.

Ómar segir að þótt við blasi að umræðan um kosti og galla ESB sé að komast á fleygiferð innan flokksins þýði það ekki að nein umskipti hafi orðið á afdráttarlausri stefnu VG gegn ESB-aðild. En endurmat fari fram, ekki síst vegna hamfaranna í fjármálalífinu, og nýjar skoðanakannanir hafi eflaust sín áhrif.

Kannanir sýna að 2/3 hlutar svarenda sem segjast styðja VG vilja skipta um gjaldmiðil og meirihluti þeirra sem segjast myndu kjósa flokkinn segist styðja aðildarumsókn að ESB.

Fram kemur í Morgunblaðinu að mikið sé fundað um Evrópumálin á vettvangi Evrópuhóps undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns VG. Ung vinstri græn, UVG,  haldi einnig opna fundi um hvað felst í aðild að ESB, seinast í gærkvöldi, þar sem Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, hafi verið fenginn til að hafa framsögu.

„Í augnablikinu höfum við enga sérstaka stefnu gagnvart ESB, við setjum marga varnagla varðandi inngöngu en viljum kynna okkur málin áður en afstaðan er mótuð,“ segir Steinunn Rögnvaldsdóttir formaður UVG. „Okkur fannst við ekki vita nógu mikið um ESB. Okkur fannst við í raun bara hafa tekið einhverja páfagaukafrasa upp frá móðurflokknum, sem hefur skýra afstöðu og er á móti inngöngu í ESB. Við erum með líka stefnu en í þessu tilfelli fannst okkur okkar stefna ekki nægilega byggð á upplýstri afstöðu okkar sjálfra“ er haft eftir Steinunni.

Ögmundur Jónasson alþingismaður segir í Morgunblaðinu að Evrópuumræðan ekki til marks um stefnubreytingu, heldur „hve mikilvægt við teljum að vera opin fyrir öllum tillögum og hugmyndum“. Hann tekur undir að mikil gerjun sé í gangi, enda eigi þessi mál öll að vera til skoðunar og endurmats eins og önnur mikilvæg mál á öllum sviðum þjóðfélagsins.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar