Bjarni Harðarson, alþingismaður Framsóknarflokksins, segir um trúnaðarbréf tveggja framsóknarmanna sem hann óvart sendi til fjölmiðla í gærkvöldi, að allt hafi þetta verið í gamni gert.
Aðstoðarmaðurinn átti samkvæmt beiðni Bjarna að útbúa nafnlaust netfang og senda bréfið á alla fjölmiðla.
Í Fréttablaðinu í dag segir Bjarni að hann og aðstoðarmaðurinn hafi haft „þetta í flimtingum í samtali þeirra á milli“, en hann hafi ekki ætlast til að málið yrði tekið alvarlega.
Gunnar Oddsson og Sigtryggur Jón Björnsson, framsóknarmenn í Skagafirði, hafa átt í bréfaskriftum við Valgerði Sverrisdóttur, alþingismann Framsóknarflokksins og fyrrverandi viðskiptaráðherra, um þátt hennar í einkavæðingu bankanna.
Þeir gagnrýna Valgerði harðlega fyrir hennar þátt í einkavæðingunni í bréfi sem þeir sendu henni í gær, en hvorugur segist hafa gefið leyfi fyrir því að bréfið yrði sent fjölmiðlum.
Bréf Skagfirðinganna til Valgerðar barst þingmönnum Framsóknarflokksins og nokkrum í viðbót, alls sextán manns.
Bjarni segist hafa velt fyrir sér að senda bréfið á fjölmiðla en fallið frá því. Hann gerði það þó í ógáti og sendi síðan fjölmiðlum örfáum mínútum síðar ósk um að tölvuskeyti hans
til aðstoðarmannsins yrði eytt.
Bjarni segist undrandi á að fjölmiðlar skuli ekki hafa orðið við þeirri ósk heldur notað upplýsingar sem þeim bárust fyrir misgáning til „að koma höggi á menn“.
