Þriðjudagur - 11.11 2008 - 09:05 - Ummæli ()

IMF og norrænar ríkisstjórnir: Enn vantar upplýsingar frá Íslandi svo hægt sé að afgreiða lán

2002-07-09t034407z_01_nootr_rtridsp_2_ouktp-britain-welsh-euro.jpgNorrænar ríkisstjórnir geta ekki stutt alþjóðlegan lánveitingapakka til Íslendinga nema þeir leggi ítarlegri upplýsingar á borðið. The Wall Street Journal hefur þetta eftir finnska forsætisráðuneytinu, að sögn mbl.is.

Aðstoðarráðuneytisstjóri í finnska fjármálaráðuneytinu, Ilkka, Kajaste, segir að enn vanti nákvæmar áætlanir um hvernig reisa eigi efnahagslífið á Íslandi við, en þær upplýsingar séu nauðsynlegar til að norrænu þjóðirnar skrifi undir. Kajaste mun hafa hitt íslenska embættismenn í síðustu viku, að sögn WSJ.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bíður líka eftir frekari upplýsingum áður en stjórn sjóðsins getur fjallað um lánveitinguna, samkvæmt heimildarmönnum innan sjóðisns, segir í Wall Street Journal.

Fulltrúi sænska seðlabankans segir enn ekki ákveðið hvort bankinn taki þátt í björgunarpakkanum eftir að IMF hafi samþykkt 2,1 milljarða dollara lánveitinguna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar