Mánudagur - 17.11 2008 - 11:34 - Ummæli ()

Opinn borgarafundur á NASA í kvöld. Fulltrúar fjölmiðla í pallborði. Fjórir frummælendur

borgarafundur.jpgÍ kvöld klukkan 20 er efnt til opins borgarfundar í NASA til þess að ræða þjóðfélagsástandið og gefa hinum almenna borgara kost á að koma hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri.

Þetta er í þriðja sinn sem slíkur borgarafundur er haldinn eftir að bankarnir hrundu. Fyrri fundirnir voru í Iðnó en í kvöld er fundurinn í NASA við Austurvöll.

Í fréttatilkynningu frá fundarboðendum, sem Gunnar Sigurðsson leikstjóri og Davíð A. Stefánsson bókmenntafræðingur fara fyrir, segir að í pallborði verði ritstjórar og fréttastjórar helstu fjölmiðla landsins, auk fulltrúa frá Blaðamannafélagi Íslands.

Fram kemur að öllum stjórnmálamönnum, seðlabankastjórum, bankastjórum, fréttastjórum og öðru fjölmiðlafólki sé boðið að mæta til að svara spurningum Íslendinga milliliðalaust.

Fyrirkomulag fundarins er þannig að fjórir frummælendur hefja umræðuna (5 mínútur hver). Þeir eru Irma Erlingsdóttir, bókmenntafræðingur, Eggert Briem, stærðfræðingur, Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður og Davíð A. Stefánsson, bókmenntafræðingur.

Þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og hver sem vill fær tvær mínútur til að tjá sig úr sal eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar