Ted Turner, stofnandi CNN, sagði viðtali við Wolf Blitzer í pólitíska spjallþættinum Late Edition á CNN í gær að nú orðið gætti hann þess að hafa persónulegan sparnað sinn að mestu í ríkisskuldabréfum. En hann sagðist líka hafa átt skuldabréf með einkunn AAA, „í einum þessarra íslensku banka“ og hann hefði tapað milljónum og aftur milljónum dollara. Bréfritari á vefsíðu Egils Helgasonar bendir á þetta í dag og segir: „Það virðist enginn endir á því hversu víða “athafnasemi” útrásarvíkinganna hefur teygt sig. Orðspor landsins lítils virði“.
