Bresk bók um Jón Ásgeir stöðvuð. Málaferlum hótað. Útgefandinn ræður ekki við kostnaðinn
Lögfræðingar á vegum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar koma í veg fyrir að bók um hann á ensku, sem ýmist gengur nafninu Sex, Lies and Supermarkets eða The Ice Man Cometh, komi út. Útgefandinn telur að hann muni ekki ná upp í kostnað við útgáfuna ef til málaferla kemur eins og lögfræðingar Jóns Ásgeirs hafi hótað. Upphaflega átti bókin að koma út fyrir tveimur árum.
Kristján B. Jónasson bókaútgefandi og formaður Félags íslenskra bókaútgefenda greinir frá þessu á bloggsíðu sinni. Hann kveðst þekkja vel til breska útgáfufélagsins sem ætlaði að gefa bókina út, John Blake Publishing. Hann kveðst hafa fengið þessar upplýsingar síðsumars þegar hann forvitnaðist um bókina sem auglýst hefur verið á netinu.
Áður hefur verið greint frá væntanlegri útkomu bókarinnar í íslenskum fjölmiðlum, m.a. á dv.is á Vísi.
Höfundar bókarinnar eru þekktir breskir blaðamenn, Ian Griffith og Jonathan Edwards. Í auglýsingum þar sem útkoma bókarinnar var boðuð sagði að nafn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar væri aldrei fjarri hneykslismálum og leynimakki. Málaferlin í Baugsmálinu voru nefnd og sagt að um væri að ræða athyglisverða bók fyrir þá sem vildu vita sannleikann um eitt fréttnæmasta mál síðari ára.
Kristján B. Jónasson segir á bloggi sínu:
Ég heyrði fyrst af þessari bók árið 2005. Það ár átti John Blake eina söluhæstu bók á breskum bókamarkaði fyrr og síðar, bók sem margir segja að hafi einmitt verið aflmótor celebrity ævisögumarkaðarins, fyrra bindi af sögu Jordan, Being Jordan. Mér fannst þetta athyglisvert og setti mig í samband við fólkið hjá John Blake og heyri í þeim alltaf annað slagið, síðast nú síðla sumars. Samkvæmt þeim er það lögfræðingahjörð Jóns Ásgeirs sem stoppar bókina og þau segjast ekki nenna að fara með hana lengra þar sem útilokað sé að hún selji upp í kostnaðinn sem hlýst af málavafstrinu. En þau segja jafnframt að þetta sé í eina skiptið sem þau hafi lent í vandræðum með útgáfubækur sínar, og kalla þau ekki allt ömmu sína í því sambandi.
Kristján kveðst hafa sagt við starfsmenn útgáfufélagsins að hann skildi ekki áhuga þeirra á Jóni Ásgeiri. Af hverju að gefa út bók um hann í Bretlandi?
Því svaraði síðan blaðamaður The Times sem kom hingað til lands um svipað leyti: „Við viljum vita þegar Jón Ásgeir gengur yfir götu í Reykjavík. Almenningur hefur náin tengsl við fyrirtækin sem hann á og hann á rétt á að vita allt um eigandann.“
„En hvað þá með okkur Íslendinga?“ bætir Kristján B. Jónasson við.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
