Forystumenn ríkisstjórnarinnar, þar á meðal Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, og fjöldi alþingismanna mættu á borgarafund sem hófst í Háskólabíói kl. 20 í kvöld og lauk kl. 22. Sjónvarpið sendi beint frá fundinum.
Davíð Oddssyni seðlabankastjóra var einnig boðið, en hann mætti ekki.
Að loknum ávörpum ræðumanna var fyrirspurnum beint til ráðherranna. Þá kom Einar Már Guðmundsson skáld í ræðustól og flutti ádrepu.
Húfyllir var í bíóhúsinu og komust færri að en vildu. Öll sæti voru setin. Í anddyrinu stóð þéttur hópur fólks og fylgdist með dagskránni af skjám sem þar var komið fyrir. Mikil stemmning var á fundinum og mikil þátttaka í fyrirspurnum.
Allir lögðu ræðumenn áherslu á að þjóðin ætti rétt á að fá að kjósa við þær kringumstæður sem skapast hafa í íslensku þjóðfélagi. Svör ráðherranna voru stutt eins og lagt var upp með, en allir höfnuðu þeir kröfum um kosningar. Geir Haarde forsætisráðherra sagði að rannsókn færi fram á því sem gerðist og þá kæmi í ljós hverjir bæru ábyrgð.
Fundarstjóri, Gunnar Sigurðsson, greindi frá því að næst yrðu forystumenn verkalýðshreyfingarinnar og lífeyrissjóðanna kallar á fund borgarahreyfingarinnar.
