Þriðjudagur - 25.11 2008 - 14:45 - Ummæli ()

Geir og Steingrímur slá atviki á Alþingi upp í grín

althingi-bjorn-steingr-ghh.jpgForystumenn stjórnar og stjórnarandstöðu, þeir Geir Haarde forsætisráðherra og Steingrímur Sigfússon formaður VG, gera lítið úr atviki í þingsal í gær við umræður um vantrausttillögu stjórnarandstöðunnar.

Undir ræðu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, sem hafði sakað Steingrím um að standa í vegi fyrir því að nefnd verði skipuð til að rannsaka bankahrunið, sagði Steingrímur „Étt‘ann sjálfur!“ og gekk síðan að Geir og virtist ýta við honum í sæti sínu.

Eftir ríkisstjórnarfund í morgun sagði Geir, samkvæmt frásögn DV: „Hann bankaði í öxlina á mér. Við erum nú svo góðir félagar við Steingrímur að ég kippi mér ekki upp við það. Hann reiddist Birni Bjarnasyni. Það fór nú ekki framhjá neinum. Það er ekkert stórmál.“  Geir vildi ekki segja hvað þeim Steingrími fór á milli.

Steingrímur segir svo á Vísir.is að það sé fjarri ölli lagi að hann hafi slegið til Geirs. „Ég held að Geir Haarde sé algjörlega ómarinn á öxlinni,“segir hann. „Ég get tekið fast á mönnum með orðsins brandi en ég hef ekki lagt fyrir mig handalögmál í stjórnmálum.“ Hann segist ekki hafa getað setið undir „slúðri“ og „kjaftæði“ Björns um að hann stæði sérstaklega gegn því að rannsóknarnefndin kæmist á koppinn. Hann hafi svo gengið að Geir og spurt hann hvort þetta væri frá honum komið.

Myndskeið af atvikinu er á Alþingisvefnum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar