Föstudagur - 28.11 2008 - 10:58 - Ummæli ()

Ný skopteikning frá Sigmund. Lýsir aftöku sinni á Morgunblaðinu

sigmundarmynd.jpgHinn landsfrægi skopteiknari, Sigmund, hefur birt teikningu af „aftöku“ sinni á Morgunblaðinu. Honum var nýlega sagt upp störfum eftir að hafa teiknað í blaðið í marga áratugi og var ósáttur við hvernig viðskilnaðinn bar að.

Teikninguna birtir Sigmund á bloggsíðu Halls Hallssonar blaðamanns og rithöfundur. Hún er send Halli sem þakklætisvottur fyrir nýlega grein Halls þar sem hanskinn var tekinn upp fyrir Sigmund. Taldi Hallur ákvörðun Ólafs Stephensens ritstjóra verða blaðinu „til eilífrar skammar“ eins og hann komst að orði.

Hallur taldi að pólitískar ástæður lægju að baki ákvörðunar ritstjórans:

Fremsta skopteiknara Íslandssögunnar var kastað fyrir róða eftir áratuga farsælt starf vegna þess að hann þjónar ekki pólitísku markmiði ritstjórans; að keyra Ísland inn í Evrópusambandið. 

Hallur Hallsson hefur nýlega sent frá sér skáldsöguna Váfugl sem er söguleg skáldsaga um framtíð Íslendinga. Sagan hefst í Brüssel, berst til Íslands, Kaupmannahafnar, Berlínar og endar í Rómaborg. Inn í fléttast stórviðburðir Íslandssögunnar í bland við evrópskt sögusvið um átök og völd.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar