Sunnudagur - 30.11 2008 - 15:43 - Ummæli ()

Bannar Seðlabankinn nú erlenda fjárfestingu á Íslandi? Netþjónabú í uppnámi

vilhjalmur-thorsteinsson-cc.jpgVilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP, framleiðanda Eve Online tölvuleiksins og gagnaversfyrirtækisins Verne Holdings, segist ekki skilja hvers vegna búið sé að banna erlendar fjárfestingar í innlendum fyrirtækjum með nýju lögunum um gjaldeyrishöft.

Vilhjálmur sagði í þættinum Silfri Egils í dag, að honum litist „alveg bölvanlega“ á lögin, sérstaklega á reglur Seðlabankans. Hann sagði bæði þessi fyrirtæki vera með erlenda fjárfesta, sem „hreinlega mega ekki fjárfesta í félögunum núna, mega ekki koma með dollara inn í landið til þess að fjárfesta í þessum félögum, sem þó stóð til.“

„Ég átti mjög erfiðan símafund í gær með þessum erlendu fjárfestum þar sem ég var að reyna að útskýra þetta allt saman fyrir þeim og ég bara fann hvernig áhuginn á Íslandi dofnaði með hverri mínútunni þegar ég var að útskýra þennan fjárhag fyrir þeim. Ég veit ekki hvort þetta eru einhver mistök þarna á ferðinni eða hvort við þurfum að fara að sækja um undanþágu hjá Seðlabankanum, en þetta er komið einhverja áratugi aftur í tímann,“ sagði Vilhjálmur í þættinum.

Vilhjálmur segir á vefsíðu sinni: „Verne Holdings hf. hyggst reisa gagnaver í Keflavík og hefur keypt tvö stór vöruhús í þeim tilgangi af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar, fyrir miklar fjárhæðir.  Í félaginu eru erlendir fjárfestar sem ætluðu að koma með verulegt magn dollara inn í landið sem hlutafé í Verne Holdings.  Ef Seðlabankanum er alvara sé ég ekki betur en að menn geti pakkað saman og gleymt því verkefni, og nýja sæstrengnum Danice í leiðinni.

Er þetta það sem íslenskt efnahagslíf þarf á að halda um þessar mundir?  Eða er þetta enn eitt dæmið um mistök Seðlabanka?  Hvernig útskýrir maður svona rugl fyrir útlendingum?“

Benedikt Jóhannesson, ristjóri Vísbendingar sagði einnig í Silfri Egils um þetta að það gæti verið mjög hættulegt ef þetta stoppaði erlenda fjárfestingu hingað. „Menn hafa einmitt verið að tala fyrir því að Ísland sé svo ódýrt að nú ættu erlendu peningarnir að koma inn.

„Annars vegar sé þessi handvömm að menn megi ekki koma með peninga hingað inn, eins og Vilhjálmur er að segja og svo það að geti menn ekki tekið þessa peninga út aftur. Hvers konar land er það?“ sagði Benedikt.

Fyrsta grein nýrrar reglugerðar Seðlabankans um gjaldeyrisviðskipti hefst svona:

 

Fjárfesting í verðbréfum, hlutdeildarskírteinum verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, peninga-markaðsskjölum eða öðrum framseljanlegum fjármálagerningum með erlendum gjaldeyri er óheimil.

Vilhjálmur segist ekki geta skilið þetta öðruvísi en að erlend fjárfesting sé þar með bönnuð í landinu.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar