Í frétt í Morgunblaðinu í dag er sagt frá viðtali við Davíð Oddsson við Bent A. Koch á danska dagblaðinu Fyens Stiftstidende, þar sem Davíð segist ætla að gegna stöðu bankastjóra nokkur ár í viðbót og þegar komi að því að hann hætti muni hann gera það af sjálfsdáðum.
Það yrði með sama hætti og þegar hann lét af störfum sem forsætisráðherra. Verði hann hins vegar þvingaður til að víkja muni hann snúa sér að stjórnmálum á ný.
Um það hvort Ísland eigi að leita eftir aðild að ESB segist hann vera andvígur því en að hann muni lúta niðurstöðum flokks síns.
Viðtalið ber yfirskriftina „Blóraböggull fólksins“, en Davíð áréttar að hann hafi varað fólk við en enginn viljað hlusta. Hann hafi hreina samvisku, en skilji að reiði fólks beinist að sér ar sem hann sé tákngervingur valakerfisisns sem Seðlabankastjóri.
Viðtalið við Davíð.
