Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor, ritar grein í nýjasta tölublað Vísbendingar, vikurits um viðskipti og efnahagsmál.
Þar segir hann gjörðir Seðlabanka Íslands og annarra efnahagsyfirvalda á undanförnum tveimur mánuðum ekki til þess fallnar að ná þjóðinni upp úr feni skulda og mannorðsmissis.
Viðskiptavefur visis.is segir frá þessu.
Í greininni fjallar Ragnar um „skömmtunar- og haftakerfi“ í viðskiptum með gjaldeyri og segir Seðlabankann hafa sýnt með gjörðum sínum að hann skilji ekki markaði og á hvaða hátt þeir starfi.
Hér hafi í orði kveðnu átt að byggja efnahagslífið á leiðsögn frjálsra markaða, sem hafi átt að vera hornsteinn íslenskrar efnahagsstefnu.
Það hafi hins vegar opinberast að stjórnendur Seðlabanka séu á allt annarri skoðun og beri greinilega lítið traust til markaðsafla. Þegar mikið liggi við hrökkvi þeir í gamla farið, telji vænlegast að hverfa til fortíðar og handstýra verði og viðskiptum.
Ragnar segir ljóst að erlend fyrirtæki muni hugsa sig tvisvar um áður en þau fjárfesti hér og innlend fyrirtæki muni skoða þann kost vandlega að færa heimilisfesti og sem mestan rekstur til útlanda.
