eyjan.is

Laugardagur 06.12.2008 - 19:31 - Ummæli ()

Fréttastofa Sjónvarps hefur mest traust

konnun1.jpgLangflestir, eða tæp 77% aðspurðra, segjast bera mikið traust til Fréttastofu Sjónvarps, RÚV. Þetta kemur fram í skoðanakönnun MMR, Markaðs- og miðlarannsókna ehf.

Netútgáfa Morgunblaðsins, Mbl.is, nýtur næstmests trausts fréttamiðla sem spurt er um í könnuninni en þar á eftir kemur Morgunblaðið með um 63%.
Fréttastofa Stöðvar 2 er í fjórða sæti með 49% og síðan Fréttablaðið með 45% og Vísir.is með 32,5%. Því næst koma Viðskiptablaðið með um 30%, Eyjan.is með um 14% og síðan DV, sem um 5% sögðust bera traust til. DV sker sig úr sem sá miðill sem flestir segjast bera lítið traust til.

konnun2.jpgTöluverður munur mælist á trausti til fjölmiðla eftir fylgi við stjórnmálaflokka. Meðal þeirra sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn eru 77% sem segjast bera mikið traust til Morgunblaðsins en mun færri þeirra, eða 36%, segjast bera mikið traust til Fréttablaðsins.

Traust kjósenda Samfylkingar og Vinstri grænna til Morgunblaðsins og Fréttablaðsins er aftur á móti mun jafnara. Meðal þeirra sem segjast myndu kjósa Samfylkinguna eru 57% sem bera mikið traust til Morgunblaðsins en 51% segjast bera mikið traust til Fréttablaðsins. Meðal þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri græna eru 55% sem bera mikið traust til Morgunblaðsins en 49% segjast bera mikið traust til Fréttablaðsins.

Meðal kjósenda allra flokka er fréttastofa Sjónvarps, RÚV, sá fjölmiðill sem flestir segjast bera mikið traust til.

konnun3.jpgEinnig var spurt í könnuninni um afstöðu fólks til þess að Ríkisútvarpið hverfi af auglýsingamarkaði. Ríflega helmingur sagðist fylgjandi því. Þar reyndist mikill munur á afstöðu eftir aldri svarenda.

Smellið á myndirnar til að stækka þær.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is