Sunnudagur - 7.12 2008 - 14:21 - Ummæli ()

Jón Steinsson: Verður sama fólk og nú er gjaldþrota auðstétt Íslands á ný eftir 2-3 ár?

jon-steinsson.jpgJón Steinsson, hagfræðingur við Columbia háskóla í New York, lýsti yfir miklum áhyggjum á uppgjöri eigna og skulda innan nýju og gömlu bankanna í þættinum Silfri Egils í dag.

Jón sagði í þættinum, og í grein í Fréttablaðinu í vikunni, að hagsmunir íslenskra skattgreiðenda séu gríðarlegir hvað þessi mál varða. „Eignir nýju ríkisbankanna eru um 3.000 ma.kr. Fyrir hvert prósent af þessum eignum sem ríkið gefur eftir eða rýrna í verði vegna undanskota verður afkoma bankanna lakari um 30 ma.kr og þar af leiðandi skattar í framtíðinni hærri sem því nemur.“

„Hættan er sú að við vöknum upp við það eftir tvö til þrjú ár að eignir bankanna hafa rýrnað, um segjum 20%, sem eru 600 milljarðar króna eða 15 sjúkrahús, og skuldir ríkissjóðs orðnar 150% af landsframleiðslu, og allt fólkið sem hefur verið efnað á Íslandi gegnum tíðina, en er í dag gjaldþrota, er með undraskömmum hætti orðið efnað á ný. Við bara megum ekki láta þetta gerast.“

Við verðum að hafa alvöru eftirlit með því sem er að gerast í þessum risastóru bönkum sem nú eru á ábyrgð skattgreiðenda. „Meðan staðan er sú að þetta er ekkert allt uppi á borðinu og ekki í gildi skýrar reglur um sölu eigna og endurmat skulda er háttað innan bankakerfisins.“

Jón sagði þetta „kjöraðstæður fyrir spillingu“ og að kjörnir fulltrúar almennings verði að vera virkir í eftirliti.

„Ég hef miklar áhyggjur af því að það sé ekki nægilega mikið þannig núna. Það þarf fólk í þessar stöður sem hefur djúpan skilning á þessari fjármálaleikfimi sem innherjarnir munu bera á borð. Þegar þessir flóknu hlutir koma á borð fjármálaráðherra, viðskiptaráðherra eða bankaráðunum, þá þurfum við að hafa aðila í þessum stöðum sem geta skilið þessa díla, svo þeir semji ekki af sér fyrir hönd þjóðarinnar. ÉG hef því miður ekki að aðilarnir í þessum stöðum á Íslandi í dag hafi nægilega djúpan skilning á því erfiða verkefni sem er fyrir höndum hjá þeim.“

Jón segir líka mikilvægara en nokkru sinni fyrr að stjórnvöld taki til rækilegrar endurskoðunar lög og reglur um viðskipti tengdra aðila. „Það þarf að lágmarka hættuna á spillingu og  lágmarka hættuna á því að innherjum takist að fá ríkið til þess að semja af sér“.

Geir Haarde, forsætisráðherra, sagði m.a. í þættinum Vikulokunum í gær, spurður um gagnrýni Jóns í Fréttablaðsgreininni, að þetta væri gríðarlega mikilvægt mál. „Ég held að þetta sé eitt af þvi sem er að pirra fólk og skapa tortryggni og gremju ef fólk óttast að það sé ekki staðið eðlilega að því að vinna úr þessum eignum sem gömlu bankanrir eru með og skilanefndirnar sjá um. Þarna er mjög nauðsynlegt að skilanefndirnar vinni með þeim hætti að það sé hafið yfir gagnrýni og ég veit að það ágæta fólk sem þar starfar eru að gera sitt besta til þess.

„Auðvitað eru takmörk fyrir því hvað þeir geta unnið mikið fyrir opnum tjöldum en ég  legg áherslu á að þetta sé gert með eins gagnsæjum hætti og hægt er og auðvitað gengur ekki að mismuna fólki í þessu ferli eða láta einhverja hafa á vildarkjörum það sem öðrum stendur ekki til boða.“

Geir sagði auk þess mikilvægt að upplýsa fljótt um það sem hafi átt sér stað innan bankanna fyrir fallið, „skúffufélög og krosseignatengsl og félög stofnuð til að standa að einhverju dularfullu athæfi í verðbréfaviðskiptum.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, benti á í sama þætti að í fyrirtækjapakka ríkisstjórnarinnar væri m.a. gert ráð fyrir umboðsmanni viðskiptavina hjá nýju bönkunum sem hægt yrði að kvarta til ef menn teldu sér mismunað.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar