Árni vissi ekki um tilboð Breta um að færa Icesave reikninga
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, segir að sunnudaginn 5. október, viku eftir að ákveðið var að yfirtaka Glitni, hafi yfirmenn Seðlabankans, forsætisráherra og nánir aðstoðarmenn hans, vitað um tilboð breska fjármálaeftirlitsins (FSA) um að færa Icesave-reikninga Landsbankans í breska lögsögu sunnudaginn 5. október. Hann segir að um þetta séu til bréflegar heimildir.
DV skýrir frá þessu í dag.
Í fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um þetta á þingi til Árna Mathiesen fjármálaráðherra segir Siv að breska fjármálaeftirlitið hafið boðist til að færa reikningnana í breska lögsögu gegn 200 milljóna punda greiðslu.
Í skriflegu svari segist Árni ekki hafa vitað um slíkt tilboð, en neitar ekki tilvist þess.
Í fyrirspurn Sivjar spyr hún í hvað Árni hafi verið að vísa með eftirfarandi tilsvari í símtali við Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta og fer fram á að hann birti minnisblöð um sem tengist þessu tilsvari:
Darling: „Ég tek því þá sem svo að loforðið sem Landsbankinn gaf okkur um að hann fengi 200 milljónir punda í reiðufé sé einnig fyrir bí?“
Fjármáláðherra: „Já, þeir fengu ekki það fé.“
Darling: „Veistu, ég skil svo sem afstöðu þína. Þú verður að gera þér ljóst að orðspor þjóðar þinnar bíður hræðilegan hnekki.“
Árni segir í svari sínum um þetta að hann hafi talið að fjármálaráðherra Breta hefði verið að vísa til fyrirgreiðslu sem Landsbankinn hefði farið fram á í Seðlabanka Íslands en ekki fengið og kvaðst engin minnisblöð hafa um málið.
Ekki er þó ljóst hvort Alstair Darling eigi í þessum orðaskiptum við umrætt tilboð FSA.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
