eyjan.is

Þriðjudagur 09.12.2008 - 16:18 - Ummæli ()

Fæstir treysta FME, bönkunum, SÍ og ríkisstjórn

Fjármálaeftirlitið, bankakerfið,Seðlabankinn, Alþingi og ríkisstjórn Íslands njóta minnst trausts meðal almennings samkvæmt netkönnun MMR, Markaðs- og miðlarannsókna ehf. Þannig eru 80% sem setjast bera lítið traust til Fjármálaeftirlitsins og bankakerfisins en 74% segjast bera lítið traust til Seðlabankans.

Ríkisstjórnin nýtur lítils trausts meðal 61% svarenda, og Alþingi nýtur lítils trausts meðal 55% svarenda. Mest traust er aftur á móti borið til Háskóla Íslands, Fréttastofu Sjónvarps (RÚV) og Lögreglunnar.

traust.gif

Könnunin var framkvæmd dagana 2.-5. desember og var heildarfjöldi svarenda 2464 einstaklingar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is