Þriðjudagur - 9.12 2008 - 06:49 - Ummæli ()

Össur og Ögmundur á fundi um helgina. Ögmundur neitar þreifingum um nýja stjórn

ogmundurjonasson.jpgÖssur Skarphéðinsson, ráðherra Samfylkingar, heimsótti Ögmund Jónasson, þingflokksformann VG, og fundaði með honum nokkra stund á laugardaginn var.  Ögmundur vill lítið gera úr fundinum, en viðurkennir þegar gengið er á hann að þeir hafi „heyrst um helgina“.

Fréttablaðið segir frá þessu í dag.

„Nei, við erum ekki að mynda ríkisstjórn við Össur Skarphéðinsson, en við ræðumst oft við. [...] Við ræddum bara svona sitt af hverju og stjórnmál bar vissulega á góma,“ segir Ögmundur við Fréttablaðið. Þreifingar um stjórnarsamstarf hafi þó ekki farið fram milli þeirra. Ögmundur svarar ekki hversu langur fundurinn hafi verið.

„Maður heyrir það á yfirlýsingum manna að það er vaxandi þrýstingur innan Samfylkingar um að boða til kosninga,“ segir Ögmundur: „En ég sé ekki nein merki þess að það sé að slitna upp úr stjórnarsamstarfinu, því miður.“

Spurður hvort hann væri tilbúinn í samstarfið, færi svo að slitnaði upp úr því núverandi, segir Ögmundur að „það myndi ráðast af svo mörgu“. Krafa VG sé sú að efnt verði til kosninga, helst á fyrstu mánuðum komandi árs.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar