Miðvikudagur - 10.12 2008 - 21:24 - Ummæli ()

Bjarni Benediktsson hættir formennsku hjá N1. Ætlar að helga stjórnmálunum alla krafta sína

bjarni1.jpgBjarni Benediktsson alþingismaður hefur látið af stjórnarformennsku í félögunum N1, sem rekur samnefndar bensínstöðvar, og BNT.

Frá þessu er sagt í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Fram kemur að Bjarni gerir þetta til að helga sig stjórnmálunum að fullu. „Ég hef fundið fyrir því nú á þessum haustmánuðum að full þörf er á því,“ er haft eftir honum í blaðinu.

Bjarni lét af stjórnarformennsku í N1 fyrir um það bil tíu dögum og í BNT á mánudaginn. Föðurbróðir hans, Einar Sveinsson, hefur tekið við stjórnarformennsku í báðum félögunum, en hann var fyrir í stjórnum þeirra. Annar frændi hans, Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri Talnakönnunar, kemur hins vegar nýr inn í stjórnirnar.

Bjarni segist í samtali við Viðskiptablaðið ekki eiga neinna hagsmuna að gæta í neinum hlutafélögum og því hafi þetta verið einföld ákvörðun. Atburðir síðustu vikna í þjóðfélaginu leggi hins vegar enn meiri ábyrgð á herðar stjórnmálamanna.
Aldrei áður hafi þeir staðið frammi fyrir öðru eins verkefni og nú.

„Ég neita því heldur ekki að mér finnst á vissan hátt óheppilegt að vera mjög virkur þátttakandi í viðskiptalífinu eftir að bankarnir komust í hendur ríkisins. Það getur möguleika leitt til einhverrar tortryggni sem gæti bitnað á hagsmunum félaganna. Mér finnst það ekki góð staða,“ segir hann. Þá hafi alltaf legið ljóst fyrir að hann myndi velja þessa leið ef hann fyndi að árekstrar yrðu á milli starfa hans í viðskiptalífinu annars vegar og í stjórnmálum hins vegar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar