Miðvikudagur - 10.12 2008 - 22:13 - Ummæli ()

Dómsmálaráðherra: Gagnsæi skortir í störfum FME. Margt gerst sem gefur tilefni til tortryggni

_44111903_zubkov_russiangov.jpgBjörn Bjarnason dómsmálaráðherra segir í pistli á vefsíðu sinni í kvöld að því miður hafi  margt gerst, sem veki tortryggni og jafnvel ótta um, að ekki sé gætt fyllstu varúðar við meðferð gagna eða eigna eftir bankahrunið.

Björn segir það skoðun sína að gagnsæi sé ekki nægilega mikið í störfum fjármálaeftirlitsins, meira að segja ekki gagnvart viðskiptaráðherra eins og birst hafi í umræðum um athugun KPMG á Glitni banka, „umræðum, sem leiddu loks til þess, að KPMG dró sig í hlé“ eins og hann kemst að orði.

Hann segir að í því sambandi hefðu viðbrögð við kortlagningu á vegum ríkissaksóknara á fyrstu stigum málsins, átt að hvetja til varúðar. „Þar taldi ég ómaklega vegið að grandvörum embættismönnum, en allt kom fyrir ekki.“ Hér vísar Björn til þess að núverandi og fyrrverandi ríkissaksóknari sögðu sig frá undirbúniningi rannsóknar á bankahruninu þar sem synir þeirra tengust fyrirtækjum sem voru aðaleigendur tveggja viðskiptabanka. Fram hefur komið að forstjóri KPMG er faðir forstjóra Stoða, sem var aðaleigandi Gitnis.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar