Innlent - miðvikudagur - 10.12 2008 - 21:52

TM: Forstjórinn lét 2,5 milljarða í sjóð hjá VBS. Keypt í FL Group og Glitni. Hugsanlega glatað fé

tm.jpgTryggingamiðstöðin (TM) reynir nú að endurheimta 2,5 milljarða króna sem voru lagðir inn á peningamarkaðsreikning hjá VBS fjárfestingarbanka í janúar síðastliðnum. Peningarnir komu úr sjóðum fyrirtækisins og voru að töluverðu leyti notaðir til að kaupa hlutabréf í FL Group og Glitni. Óvíst er hvort peningarnir fást til baka. Ákvörðun um þessa ráðstöfun var ekki borin undir stjórn TM heldur tekin af Sigurði Viðarssyni forstjóra fyrirtækisins í samráði við eigendur félagsins, en á þeim tíma hafði FL Group eignast félagið.

Frá þessu er sagt í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun.

Fram kemur að þegar ákvörðun forstjórans var tekin var FL Group ekki komið með heimild frá Fjármálaeftirlitinu til að fara með ráðandi hlut í Tryggingamiðstöðinni en FL Group eignaðist TM í október 2007.

„Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar var ekki kunnugt um þessa lánveitingu,“ hefur Viðskiptablaðið eftir Gunnari Karli Guðmundssyni stjórnarformanni TM. „Stjórnin herti reglur um fjárfestingarstarfsemi félagsins í júní síðastliðnum sem takmörkuðu áhættu á virðisrýrnun eignasafnsins. Lán það sem vísað er til var veitt fyrir gildistöku reglnanna en stjórn var fyrst upplýst um lánið í lok september. Ákveðið var að yrði lánið ekki greitt á gjalddaga yrði farið strax í innheimtuaðgerðir,“ sagði Gunnar Karl.

Viðskiptablaðið segir að þar sem VBS fjárfestingarbanki sé ekki með viðskiptabankaleyfi sé  inneign TM í peningamarkaðssjóðnum ekki tryggð samkvæmt lögum um innlánatryggingar viðskiptabanka.
 


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.