eyjan.is

Fimmtudagur 11.12.2008 - 22:39 - Ummæli ()

Persson: Seðlabanki þarf mann með þekkingu á stjórnmálum. Davíð mjög hæfur á því sviði

goranpersson.jpgGöran Persson fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar telur að stjórnmálareynsla Davíðs Oddssonar gagnist vel Seðlabanka Íslands við núverandi aðstæður. Hann segir að engin fræðigrein sé jafn ofmetin og hagfræði.

Þetta kemur fram í viðtali við Persson sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Persson flutti fyrirlestur við Háskóla Íslands í gær.

Persson leggur áherslu á gildi heilbrigðrar skynsemi þegar efnahagsmál eru annars vegar. „Ef menn bara gæta þess að sjá til að tekjurnar séu hærri en útgjöldin standa þeir sig ágætlega.“

Person bætir við: „Bestu fjármálaráðherrarnir sem við höfum haft í Svíþjóð hafa verið stjórnmálamenn. Þegar lögð hefur verið áhersla á að fá í embættið fólk með hagfræðilegan bakgrunn hefur það endað í ringulreið.“

Persson var spurður álits á því að stjórnmálamaður eins og Davíð Oddsson gegndi embætti formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands. Hann svaraði: „Seðlabanki þar sem ekki er til staðar í stjórninni einhver með þekkingu á alþjóðlegum stjórnmálum er illa staddur, það er mjög mikilvæg færni. Og sá sem nú stýrir bankanum er mjög hæfur á því sviði.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is